Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
banner
   mán 18. ágúst 2014 20:30
Elvar Geir Magnússon
Albert Brynjar: Það var sól en Þórsarar sáu hana ekki
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Þetta var mjög mikilvægur sigur. Leikirnir verða ekki meira sex stiga leikir en þetta," sagði Albert Brynjar Ingason, sóknarmaður Fylkis, sem skoraði tvö mörk í 4-1 sigri gegn Þór í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 4 -  1 Þór

„Ég er mjög ánægður með okkar leik fyrir utan smá kafla í fyrri hálfleik. Þeir skoruðu mark á hættulegum tíma. Það var glampasól í Árbænum en þeir sáu hana ekki í seinni hálfleik."

„Oddur hefði ekki verið á lífi í dag ef hann hefði ekki skorað þarna, ég var einn fyrir innan," sagði Albert um markið sem Oddur Ingi Björnsson skoraði og kom Fylki í 3-1.

Finnur Ólafsson var frábær á miðjunni í kvöld en fleiri í Fylkisliðinu áttu góðan leik.

„Finnur var mjög góður og yfirvegaður. Það er frábært að fá hann og hann verður betri með hverjum leiknum eftir meiðslin. Svo var Gunnar Örn fáránlega góður. Mér fannst allt liðið standa sig vel í dag."

Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner