Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
   mán 18. nóvember 2013 11:16
Elvar Geir Magnússon
Skömmin í Maksimir - Leikvangurinn í Zagreb
Maksimir leikvangurinn er vettvangur úrslitaleiks Króatíu og Íslands sem fram fer á morgun. Króatar tala um völlinn sem skömmina í Maksimir.

Þetta risastóra ferlíki var fyrst opnað 1912 og þrátt fyrir ýmsar endurbætur er það barn síns tíma.

Áhorfendur sitja langt frá vellinum og sjónarhornið frá mörgum sætum er ansi slæmt. Áður var hlaupabraut á vellinum en blátt gervigras hefur verið sett ofan á hana.

Maksimir völlurinn í Zagreb tekur 38 þúsund áhorfendur í sæti en ekki er reiknað með meira en 25 þúsund manns á völlinn á morgun.

Króatískir fótboltaáhugamenn eru langt frá því að vera stoltir af þessum leikvangi sem er heimavöllur Króatíumeistara Dinamo Zagreb.

Íslenska landsliðið æfði á vellinum í morgun og síðdegis verður æfing hjá króatíska liðinu.
Athugasemdir
banner
banner