Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, var svekktur með varnarleik sinna manna í 5-3 tapi gegn Val í Pepsi deildinni í kvöld.
,,Þetta var dálítið skrítinn leikur. Það er ekki ásættanlegt fyrir okkur að fá á okkur fimm mörk og það er ekki eitthvað sem við lögðum upp með. En ég er þokkalega sáttur með að við náumað skora þrjú. En það er fullt af hlutum sem við þurfum að laga," sagði Bjarni eftir leikinn.
,,Við erum að spila á móti hörkusterku liði Valsmanna með mjög fljóta menn á kantinum og góðan framherja, og þeir refsuðu okkur fyrir þau mistök sem við gerðum. Við þurfum að vinna svolítið í varnarleiknum og það má líka bæta sóknarleikinn."
,,Ég var ánægður með það að við kæmum tvisvar til baka og svo skora þeir þetta þriðja mark. Fjórða markið kýldi okkur svolítið í magann og menn náðu ekki alveg að klára þó við hefðum sett þriðja markið."
Athugasemdir





















