Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
   mið 19. ágúst 2020 21:39
Aksentije Milisic
Óskar Braga: 'Same shit, different day'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Bragason, þjálfari Dalvíkur/Reynis, var svekktur eftir tapleikinn gegn Kórdrengjum á heimavelli í kvöld.

Kórdrengirnir byrjuðu leikinn betur og hefðu geta verið búnir að klára leikinn áður en Dalvík/Reynir minnkaði muninn á 81. mínútu. Eftir það mark hins vegar þá lágu heimamenn á gestunum og með smá heppni hefði Dalvík/Reynir geta jafnað leikinn.

Lestu um leikinn: Dalvík/Reynir 1 -  2 Kórdrengir

„Same shit, different day. Ég held að það sé bara saga sumarsins í flestum leikjum sem við höfum spilað. Við byrjum illa, lentum undir, byrjum að elta og lendum oft í 50/50 sénsum á að ná að jafna en það er bara ekki að detta fyrir okkur," sagði Óskar.

Það var allt annað að sjá til liðsins í lokinn á leiknum og sagði Óskar að liðið hans hefði geta stolið stiginu í restina.

„Við hefðum geta stolið stiginu hérna í dag. Ég er búinn að segja við strákanna margoft að við eigum ekki að vera á þeim stað sem við erum, við botninn. Við erum búnir að spila við þessi lið og þetta hafa verið 50/50 leikir í hvert einasta skipti."

Óskar var spurður að því hvað þurfi að breytast hjá liðinu svo að það falli ekki um deild.

„Ég held að við þurfum bara að fara trúa því að við séum betri heldur en við erum, sérstaklega til að byrja með, það er mjög auðvelt að vera hugrakkur þegar þú ert kominn í skítinn, 2-0 undir eða eitthvað svoleiðis, sem við erum að lenda svolítið í. Þá vöknum við og komum sterkir til baka. Þessir strákar eru betri í fótbolta heldur en það að vera alltaf að lenda í þessu basli í byrjun."
Slapp
Athugasemdir
banner