Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
banner
   sun 20. júlí 2014 20:00
Hafliði Breiðfjörð
Edda Garðars: Drottningin Dóra María leysti miðvörðinn vel
Kvenaboltinn
Edda Garðarsdóttir er aðstoðarþjálfari Vals.
Edda Garðarsdóttir er aðstoðarþjálfari Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við lentum manni undir snemma í fyrri hálfleik en mér fannst við gera frábærlega. Það var mikil barátta og skynsemi í stelpunum okkar," sagði Edda Garðarsdóttir aðstoðarþjálfari Vals eftir 1-1 jafntefli við Þór/KA í dag.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  1 Þór/KA

,,Svo náum við að setja hann og þá fór ég að hugsa, 'nú er þetta komið' og var hálf farin að fagna inni í mér. Þá kemur þarna ólukku augnablik og þær ná að jafna."

Mist Edvardsdóttir fékk að líta rauða spjaldið eftir hálftíma leik og Þór/KA fékk víti sem Þórdís María Aikman varði. Hvað fannst Eddu um dóminn?

,,Ég sá þetta ekki nógu vel. Það er oft sem er barátta inni í teig og það er erfitt að sjá þegar það er hrúga af fólki og svo liggur ein eftir. Hann hlýtur að hafa séð þetta í fullkominni stöðu fyrst hann dæmir víti og rautt spjald. Það verður bara að treysta því. Dómarar þurfa að taka ákvörðunina á einu stuttu augnabliki og hafa ekki tækifæri til að melta neitt, maður treystir því að þeir vinni sín störf og geri það vel."

,,Þetta var einstaklega vel varið hjá Þórdísi og var bensín fyrir okkur restina af leiknum. Bara frábært."

Dóra María Lárusdóttir fór í miðvarðarstöðuna eftir að Mist Edvardsdóttir sá rauða spjaldið.

,,Við höfum verið óheppnar með miðverðina okkar, það er ólétta og krabbamein og bévítans ólukka og ein er sennilega með beinmar eftir bikarleikinn á móti blikunum. Að sjá svo drottninguna Dóru Maríu og leysa þetta svona glimrandi vel, því ber að fagna. Hún er ein af þeim sem er með það góðan leikskilning og frábær í fótbolta að hún gæti leyst hvaða stöðu sem er inni á vellinum nema markið, því hún kann ekki að grípa," sagði Edda að lokumog brosti.
Athugasemdir
banner