„Við tökum auðvitað stigið en ég hefði viljað þrjú í dag," sagði Ásmundur Arnarson, þjálfari ÍBV eftir 1-1 jafntefli við KR.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 1 KR
„Ég var gríðarlega ánægður með spilamennskuna í fyrri hálfleik það var gott skipulag og mikil vinnusemi á mannskapnum, seinni háfleikurinn fór meira í vitleysu á báða bóga og varnarleikurinn hélt lengst af. Heilt yfir er ég ánægður með leikinn en svekktur með niðurstöðuna," sagði Ási.
„Þetta var mjög erfiður leikur að dæma, annað liðið var ósátt í nánast hvert einasta sinn sem var dæmt, það voru nokkur spjöld til að reyna að róa þetta niður, en þetta var erfiður leikur að dæma"
„Í okkar huga kemur ekkert annað til greina en að halda okkur uppi," sagði Ási.
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir





















