Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
   fim 22. maí 2014 22:14
Daníel Freyr Jónsson
Maggi Gylfa áhyggjufullur um meiðsli Patrick: Virðist mjög alvarlegt
Magnús Gylfason.
Magnús Gylfason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús Gylfason, þjálfari Vals, var sáttur með frammistöðu sinna manna í 1-1 jafntefli liðsins gegn Stjörnunni í kvöld.

,,Við þurftum að skipta aftur í fyrri hálfleik, lentum í því með Hauk um daginn og það auðvitað riðlar aðeins leiknum. Mér fannst við vera búnir að spila mjög vel fram að því og það kom smá hikst í okkur eftir að þeir skora. Svona heilt yfir fannst mér við spila góðan fótbolta í dag," sagði Magnús.

,,Við fengum einhver fjögur eða fimm dauðafæri. Ef við hefðum bara nýtt eitt í viðbót hefðum við unnið. Við hefðum mátt vera aðeins agressívari á síðasta fjórðungnum."

Hann telur engan vafa á því að samspil mikils álags og leikir á gervigrasi séu að valda meiðslum á leikmannahópi sínum. Daninn Patrick Pedersen fór meiddur af velli í kvöld og fór hann rakleiðis á sjúkrahús.

,,Enginn vafi á því. Núna eru við búnir að spila tvo grasleiki og komum svo á þetta og ég held að allavega fyrstu meiðslin séu afleiðing gervigrassins. Án þess að vera að kenna aðstæðum um þá er þetta búið að vera svolítið spes mót."

,,Þetta virðist vera mjög alvarlegt með Patrick og hann er kominn upp á spítala. Ég er að vonast til að hin eru smávægileg en maður veit aldrei."
Athugasemdir
banner
banner