„Þeir voru góðir og yfirmönnuðu miðjuna og við áttum svolítið erfitt með að díla við það og þeir teygðu svolítið á liðinu okkar," sagði Kári Árnason miðvörður Íslands eftir 2-1 tap gegn Danmörku í Herning í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 2 Danmörk
„En það var stutt á milli í þessu, Alfreð rennur fyrir framan markið og svo bruna þeir fram og skora. Það er lítið í þessum leik þó þeir hafi vissulega verið sterkari aðilinn þá var alveg hægt að segja að við höfum skapað jafnmörg færi og þeir. Þeir fá tvö færi og það er klaufalegt að fá þessi mörk á okkur. Við lærum af þessu, það er bara mjög einfalt."
En komu Danir ykkur á óvart? „Nei nei. Við vissum alveg að þeir væru mjög góðir fótboltamenn og gætu okkur. Í fyrri hálfleik vörðumst við mjög vel og þeir sköpuðu sama sem engin færi, en í seinni hálfleik vorum við orðnir þreyttir á að verjast og vorum að fara með fleiri menn fram. Þeir voru samt að vinna alla aðra bolta og það bara féll fyrir þá."
Völlurinn var erfiður í Herning í kvöld og það truflaði íslenska liðið.
„Já það var svolítið erfitt fyrir miðjumennina að ná stjórn á boltanum og fastar sendingar voru svolítið að hlaupa frá mönnum. En það er engin afsökun."
Hvað getum við tekið jákvætt út úr þessum leik?
„Við sköpum alveg færi þó við höfum ekki átt okkar besta dag og okkar bestu menn, eða við allir vorum ekki nógu góðir. Það er svo einfalt. Það var ekki farið mikið yfir þá, við ætluðum bara að einbeita okkur að sjálfum okkur og þegar við horfum á leikinn aftur held ég að við getum lært heilmikið af þessum leik."
Það er langur tími liðinn síðan liðið vann sigur síðast en er það erfitt fyrir liðið?
„Nei, þetta eru æfingaleikir og það vantar alltaf auka 5% sem maður gefur fyrir Ísland þegar maður er að spila alvöru leiki. Það jákvæða er að við erum góðir í alvöru leikjunum en ekki eins og áður var þegar við vorum góðir í æfingaleikjunum og gátum svo ekki neitt í alvöru leikjum. Ég tel okkur vera með betra lið en Danmörk þegar eitthvað er undir og tel okkur geta unnið þetta lið með okkar sterkasta lið þegar eitthvað er undir."
Athugasemdir























