Máni Austmann Hilmarsson átti ansi góða innkomu í 4-2 sigri FH gegn Fram í Bestu deildinni í kvöld. Hann skoraði markið sem kom FH í forystu.
„Mér líður mjög vel. Þetta var fyrsti leikur með FH og fyrsta markið með FH; ég gæti ekki verið betri," sagði Máni eftir leik, en hann gekk í raðir FH frá Leikni í vetur.
„Mér líður mjög vel. Þetta var fyrsti leikur með FH og fyrsta markið með FH; ég gæti ekki verið betri," sagði Máni eftir leik, en hann gekk í raðir FH frá Leikni í vetur.
Lestu um leikinn: FH 4 - 2 Fram
„Mér fannst við töluvert betri allan leikinn, en við gefum þeim eitt klaufamark. Við vorum að komast í fínar stöður en nýttum þær ekki. Í seinni hálfleik leggjast þeir meira niður og við finnum ekki svæðin á milli. Við þurftum að fara utan á þá og mér fannst það virka mjög vel," sagði Máni.
Hann breytti leiknum með innkomu sinni inn af bekknum.
„Ég vil byrja, en svona er þetta. Við þurfum að sjá hvað gerist næst. Ég er mjög ánægður."
„Ég held að þjálfararnir vilji vera með hausverk þegar þeir velja liðið," sagði Máni.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
























