Ákveðinn í að fá Haaland til Barcelona - City veitir Liverpool keppni um Guehi - Everton mun ekki hlusta á tilboð í Branthwaite
   þri 26. ágúst 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: ÍR kláraði Smára í síðari hálfleik
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 4 - 1 Smári
0-1 Linda Eshun ('31 )
1-1 Ásta Hind Ómarsdóttir ('34 )
2-1 Monika Piesliakaite ('48 )
3-1 Steinunn Lind Hróarsdóttir ('75 )
4-1 Suzanna Sofía Palma Rocha ('90 )

ÍR tók á móti Smára í botnbaráttu 2. deildar kvenna í gærkvöldi og tóku gestirnir forystuna í fyrri hálfleik með marki frá Linda Eshun.

Ásta Hind Ómarsdóttir var fljót að jafna metin fyrir heimakonur í ÍR svo staðan var 1-1 í hálfleik.

Breiðhyltingar skiptu um gír í síðari hálfleik og gerðu út um viðureignina, svo lokatölur urðu 4-1.

Smári er á botni deildarinnar án stiga, með -77 í markatölu. ÍR er í næstneðsta sæti með 13 stig eftir þennan sigur.

Það eru þrjár umferðir eftir af deildartímabilinu.
2. deild kvenna - C úrslit
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KÞ 17 6 4 7 47 - 41 +6 22
2.    ÍR 17 5 4 8 34 - 43 -9 19
3.    Einherji 17 5 4 8 31 - 46 -15 19
4.    Smári 17 0 0 17 5 - 100 -95 0
Athugasemdir
banner
banner