Miðjumaðurinn Paul Pogba er skyndilega farinn að sýna sínar bestu hliðar fyrir Manchester United eftir stjóraskipti.
Hann skoraði tvívegis í 3-1 sigri gegn Huddersfield í gær og fagnaði sigrinum með því að rífa sig úr að ofan fyrir framan myndavélarnar eftir leik.
Hann skoraði tvívegis í 3-1 sigri gegn Huddersfield í gær og fagnaði sigrinum með því að rífa sig úr að ofan fyrir framan myndavélarnar eftir leik.
„Þetta er sá Paul sem ég þekki, sá sem ég hef þekkt síðan ég þjálfaði hann með varaliðinu. Hann hefur alltaf verið glaður drengur sem spilar með bros á vör," segir Ole Gunnar Solskjær, bráðabirgðastjóri United.
„Þegar þú spilar fyrir United áttu að vera ánægður. Að sjálfsögðu er það ábyrgðahlutverk en það er einnig heiður og forréttindi. Hann er United strákur út í gegn."
„Hann veit hvað það þýðir að spila fyrir Man United. Hann bjó til tvö eða þrjú mörk í síðasta leik, í þessum skoraði hann tvö og ég vona að hann hafi notið þess."
Manchester United er í sjötta sæti en liðið fær Bournemouth í heimsókn á sunnudag.
Athugasemdir



