Rakel Hönnudóttir, leikmaður Breiðabliks, er ánægð með að hafa dregist gegn Hetti frá Egilsstöðum í 16-liða úrslitum Borgunarbikars kvenna.
Liðin mætast í Kópavoginum og segir Rakel að það sé afar langt síðan hún spilaði síðast við Hött.
Liðin mætast í Kópavoginum og segir Rakel að það sé afar langt síðan hún spilaði síðast við Hött.
,,Við erum bara mjög sáttar. Þetta leggst ágætlega í mig, ég hef ekki keppt við Hött síðan ég veit ekki hvenær, þannig að þetta verður fróðlegt," sagði Rakel við Fótbolta.net.
,,Það er alltaf gott að fá heimaleik, alveg sama á móti hverjum maður er að spila, þannig að ég er mjög ánægð með það."
Blikastúlkur eru ríkjandi bikarmeistarar og stefnan er sett á að verja titilinn.
,,Að sjálfsögðu ætlum við að reyna að verja titilinn. Þetta er allt önnur keppni en deildin og það hafa oft komið mjög óvænt úrslit úr þessari keppni, þannig að maður verður að vera á tánum."
Athugasemdir





















