Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Æfðu allar en þó mismikið
Icelandair
EM KVK 2025
Frá æfingu Íslands í dag.
Frá æfingu Íslands í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Íslenska landsliðið tók sína fyrstu æfingu í Sviss í dag en þær lentu hér í gær eftir góða daga í æfingabúðum í Serbíu.

Stelpurnar eru á frábæru hóteli og æfa við góðar aðstæður hjá FC Allmendingen.

Það tóku allir leikmenn þátt á æfingunni í dag en hún var kannski í léttari kantinum. Æfingin var opin almenningi og komu margar af svæðinu í kring til að horfa á.

Þó allir leikmenn hafi æft, þá æfðu þær mismikið. Þær sem spiluðu mest gegn Serbíu fengu að hvíla undir lokin.

Liðið mun undirbúa sig næstu daga fyrir fyrsta leik á EM gegn Finnlandi. Sá leikur er á miðvikudaginn.

Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir
banner