„Þetta er æðisleg tilfinning. Þetta er eitthvað sem ég hef ekki fengið að upplifa. Þetta er sturlað,“ sagði Erna Guðrún Magnúsdóttir eftir að Víkingur tryggði sér sigur í Lengjudeildinni og sæti í Bestu deild kvenna að ári.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 - 2 Fylkir
„Ég er ótrúlega stolt af liðinu mínu og öllum leikmönnunum. Þetta er geggjað,“ sagði Erna áður en hún var spurð um lykilinn að velgengni sumarsins.
„Það er eitthvað öðruvísi við þetta sumar. Maður var að eignast barn í fyrr og það er einhver önnur ábyrgð. Ég held að ég skrifi mína velgengni á það.“
Víkingar hafa verið frábærar í sumar og Erna segir að þær hafi aldrei efast um að ætlunarverkið tækist.
„Við efuðumst aldrei. Við vorum með okkar markmið skrifuð niður, hvað við vildum. Bikarinn var reyndar bara geggjaður bónus. Við gerðum einhver jafntefli og töpuðum einum leik en við efuðumst aldrei og vorum alltaf með hugann á því sem við vildum. Óhræddar við að gera alltaf okkar.“
Varnarmaðurinn öflugir segir Víkinga tilbúna til að taka næsta skref og spila í deild þeirra bestu.
„Við erum algjörlega tilbúnar. Liðið er þannig samansett að ég held að við séum á góðum stað fyrir næsta tímabil.“
„Við byggjum bara á þessari liðsheild. Við fáum kannski einhvern styrk en þetta verður kjarninn fyrir næsta tímabil,“ sagði Erna að lokum en hægt er að horfa á allt viðtalið við hana í spilaranum hér að ofan.























