„Mjög ánægður. Það er ekki auðvelt að koma hingað og taka þrjú stig og við gerðum það virkilega vel í dag,“ sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari Keflavíkur eftir 0-3 sigur gegn Þór í Inkassó-deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 3 Keflavík
Keflvíkingar stigu enn eitt skrefið í átt að Pepsi-deildinni með sigrinum og eru í lykilstöðu upp á framhaldið.
„Þetta var frábær sigur. Við erum í mikilli baráttu þarna á toppnum og mikilvægt fyrir okkur að ná í þessa punkta.“
„Tölurnar gefa ekki rétta mynd af leiknum, ég er sammála því. En við gerum þrjú frábær mörk og fengum svo sem möguleika á því að gera fleiri, en vissulega átti Þór líka sína möguleika og náttúrlega Sindri ver tvær vítaspyrnur sem að sjálfsögðu skiptir miklu máli.“
Sindri Kristinn Ólafsson átti stórleik í marki Keflvíkinga en hann varði tvær vítaspyrnur ásamt því að verja rosalega frá Jóhanni Helga Hannessyni í seinni hálfleiknum.
„Sindri var frábær í dag og hefur staðið sig virkilega vel í sumar og er í mikilli framför.“ Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir























