Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 31. janúar 2023 12:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kante orðaður við Liverpool
Mynd: EPA
Samkvæmt spænska fjölmiðlinum El Nacional skoðar Liverpool að fá miðjumanninn N'Golo Kante í sínar raðir.

Kante er miðjumaður Chelsea og hefur misst af nánast öllu tímabilinu vegna meiðsla. Hann er 31 árs Frakki sem verður samningslaus í sumar.

Talsvert hefur verið fjallað um þörf Liverpool til þess að þétta raðirnar á miðsvæðinu og gæti Kante verið maðurinn sem Jurgen Klopp horfir til.

Kante verður klár í slaginn einhvern tímann í febrúar. Hann hefur einungis spilað tvo leiki í úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Það verður að teljast ansi ólíklegt að Kante fari til Liverpool fyrir gluggalok. Liverpool ætlar sér að fá Jude Bellingham í sumar.
Athugasemdir
banner
banner