fös 08. nóvember 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Subway
England um helgina - Stærsti leikurinn til þessa
Einn stærsti leikur tímabilsins, og líklega stærsti leikur tímabilsins til þessa, í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudagskvöld þegar Liverpool og Manchester City eigast við.

Annað tímabilið í röð virðast þessi félög ætla að berjast um enska meistaratitilinn.

City varð meistari á síðustu leiktíð, með einu stigi meira en Liverpool. Fyrir leik liðanna á sunnudaginn er Liverpool með sex stiga forskot á lærisveina Pep Guardiola í City.

Leikurinn á sunnudag er á Anfield í Liverpool og hefst hann klukkan 16.30.

Tólfta umferðin í ensku úrvalsdeildinni hefst í kvöld með leik Norwich og Watford á heimavelli fyrrnefnda liðsins.

Það eru sex leikir á morgun og verða tveir leikir sýndir. Lokaleikur dagsins er leikur Leicester og Arsenal þar sem mikil pressa er á Unai Emery, stjóra Arsenal. Talið er að hann sé á barmi þess að missa starf sitt.

Allir þrír leikir sunnudagsins eru í beinni. Klukkan 14:00 mætir Manchester United liði Brighton á Old Trafford, á sama tíma og Wolves og Aston Villa mætast.

Sunnudeginum, og umferðinni, lýkur svo með stórleik Liverpool og Manchester City.

föstudagur 8. nóvember
20:00 Norwich - Watford (Síminn Sport)

laugardagur 9. nóvember
12:30 Chelsea - Crystal Palace (Síminn Sport)
15:00 Burnley - West Ham
15:00 Newcastle - Bournemouth
15:00 Southampton - Everton
15:00 Tottenham - Sheffield Utd
17:30 Leicester - Arsenal (Síminn Sport)

sunnudagur 10. nóvember
14:00 Wolves - Aston Villa (Síminn Sport 2)
14:00 Man Utd - Brighton (Síminn Sport)
16:30 Liverpool - Man City (Síminn Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 10 9 0 1 15 5 +10 27
2 Brighton 10 7 1 2 26 7 +19 22
3 Man City 10 7 0 3 21 13 +8 21
4 Liverpool 10 5 3 2 14 10 +4 18
5 Chelsea 10 5 1 4 19 16 +3 16
6 Everton 10 4 4 2 12 10 +2 16
7 Bournemouth 10 4 3 3 16 14 +2 15
8 Brentford 10 3 5 2 16 11 +5 14
9 Leeds 10 3 5 2 10 8 +2 14
10 Aston Villa 10 3 4 3 14 17 -3 13
11 Tottenham 10 3 3 4 10 11 -1 12
12 Newcastle 10 3 3 4 13 16 -3 12
13 Hull City 10 2 5 3 11 11 0 11
14 Ipswich Town 10 3 2 5 15 20 -5 11
15 Fulham 10 2 4 4 10 12 -2 10
16 Nott. Forest 10 2 3 5 9 13 -4 9
17 Coventry 10 3 0 7 10 19 -9 9
18 Man Utd 10 1 5 4 14 19 -5 8
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
19 Sunderland 10 2 2 6 8 17 -9 8
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
20 Crystal Palace 10 2 1 7 10 24 -14 7
Slapp
banner