Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, er sammála því að vítavarsla Hannesar Þórs Halldórssonar hafi verið vendipunkturinn í leiknum gegn KR í kvöld. KR vann 2-0 sigur þar sem Hannes varði víti í stöðunni 0-0.
„Við spiluðum 60 mínútur vel í þessum leik en það dugði ekki og KR-ingar gengu á lagið og kláruðu," sagði Heimir eftir leik.
Eftir að hafa misnotað vítaspyrnuna keyrðu KR-ingar yfir gesti sína. „Við hættum að gera þessa hluti sem voru að virka fyrir okkur fyrr í leiknum," sagði Heimir.
Stigasöfnun hefur ekki gengið að óskum hjá FH. „Við höfum ekki verið að spila nógu vel en það er nóg eftir af þessu móti og við verðum að halda áfram."
Nánar er rætt við Heimi í sjónvarpinu hér að ofan.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |























