Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Þór/KA, var að vonum svekkt eftir 6-1 tapið gegn Val í kvöld. Rakel segir liðið sitt einfaldlega ekki hafa spilað vel í kvöld en er jafnframt bjartsýn á að norðanstúlkur nái að rétta úr kútnum í komandi leikjum.
„Þær voru aðeins ákveðnari en við og voru á undan í bolta. Við vorum bara ekki að spila nógu vel í dag.“
„Þetta var mjög jafnt alveg fyrstu 30 mínúturnar en svo fengum við mark á okkur úr aukaspyrnu alveg lengst utan af velli, vindurinn feykti þessu alveg svolítið langt. Við duttum þá aðeins niður sem við eigum ekki að gera.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Rakeli í heild í sjónvarpinu hér að ofan.























