,,Við erum hundfúlir með þetta. Við ætluðum okkur þrjú stig í dag en þetta gekk eins og við vildum," sagði Vigfús Arnar Jósepsson fyrirliði Leiknis eftir 1-0 tap gegn BÍ/Bolungarvík í fyrstu deildinni í dag.
,,Það gengur illa að skora og það gengur illa á báðum enda vallarins, við erum algjörir aular líka þegar við fáum markið á okkur og við verðum að gera betur. Það er eitthvað að hrjá okkur, eitthvað sem ég veit ekki hvað er en það er eitthvað andlegt."
Leiknismenn eru ennþá án sigurs eftir sex umferðir en liðið mætir nágrönnum sínum í ÍR í næsta leik.
,,Það er Breiðholtsslagur og menn verða að taka þann leik alveg 110%. Við erum í næstneðsta sæti og í vondum málum. Þrjú stig eru lífsnauðsynleg fyrir okkur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















