Martin Tyler sér um að lýsa leik Íslands og Sviss á EM U21 í dag fyrir Sky Sports. Tyler er margreyndur lýsandi sem hefur lýst ófáum leikjum í ensku úrvalsdeildinni og var meðal annars valinn fótboltalýsandi aldarinnar af almenningi á Englandi.
Fótbolti.net tók Tyler tali í dag og spurði hann út í EM. Hann segir að fótboltinn hafi verið góður í fyrstu leikjum mótsins en í dag væri mikilvægur dagur fyrir íslenska liðið.
Hann segir að það hafi verið synd að Aron Einar Gunnarsson fékk brottvísun í leiknum gegn Hvíta-Rússlandi og telur að það verði erfitt að fylla það skarð sem hann skilur eftir sig í leikbanninu.
Einnig talaði hann um mikilvægi þess fyrir íslenskan fótbolta að eignast svona sterkt lið og klífa upp FIFA-listann. Segist hann mikið hafa rætt við Eið Smára Guðjohnsen um þetta efnilega lið sem Ísland hefur eignast.
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.





















