Hilmar Geir í leik með Haukum gegn Keflavík í fyrra. Hann var hinsvegar í Keflavíkur búning í kvöld.
Hilmar Geir Eiðsson mætti á sinn gamla heimavöll í kvöld þegar hann og samherjar hans í Keflavík mættu Haukum í 16-liða úrslitum Valitors-bikarsins. Keflvíkingar fóru með sigur af hólmi 3-1 en Hilmar Geir var tekinn útaf um miðjan fyrri hálfleikinn, en hann náði ekki að sýna sitt rétta andlit í leiknum í kvöld.
,,Þetta var mjög skrýtin tilfinning, en það var gaman að spila á móti strákunum og láta aðeins sparka í sig og tækla en það var mikilvægt að vinna hinsvegar leikinn.
,,Við héldum boltanum þokkalega vel, þeir leyfðu okkur aðeins að vera með boltann, það er síðan gott að fá fyrsta markið og annað markið en þeir skora síðan þriðja markið svo þeir hleyptu smá spennu í þetta þá," sagði Hilmar Geir, en Haukarnir sóttu síðan meira í byrjun seinni hálfleik og áttu nokkrar ágætis tilraunir sem rötuðu ekki í netið, en Hilmar Geir fannst Haukararnir samt aldrei neitt líklegir,
,,Þegar Hilmar Trausti er þeirra helsta sóknarvopn þá getur ekki verið að þeir séu að fara skora fleiri mörk," sagði Hilmar Geir að lokum























