Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
   fim 23. júní 2011 21:33
Alexander Freyr Tamimi
Jón Ólafur: Stjarnan kann á þennan völl
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV var að vonum svekktur með 2-1 tap sinna stúlkna gegn Stjörnunni í kvöld.

„Það eru náttúrulega alltaf vonbrigði að tapa en þetta var bara hörkuleikur og allir lögðu sig fram. En tvenn skelfileg varnarmistök verða til þess að við töpum í dag,“ sagði Jón Ólafur við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Mér fannst fyrri hálfleikurinn frábær en í seinni hálfleik missum við einhvern veginn dampinn í þessu og mér fannst það skína svolítið að Stjarnan kann á þennan völl. Þetta er svona eins og malbik, það er engin motta á þessu, þannig að boltinn skoppar öðru vísi en annars staðar, og þær kunna að nýta sér það. En við létum þær leggjast full hart á okkur.“

ÍBV hefur einungis fengið 1 stig úr síðustu tveimur leikjum eftir að hafa unnið allt framan af, en Jón Ólafur segir liðið þó ekki vera á niðurleið.

„Dampurinn er alls ekki að fara af þessu. Mér fannst mínar stelpur berjast alveg til fyrirmyndar í dag og við hefðum getað verið 2-0 yfir í hálfleik, Kristín Erna fékk náttúrulega svakalegt færi, og í stöðunni 2-1 fær Hlíf alveg dauðafrían skalla til að jafna 2-2, en að tapa hérna 2-1, það getur og það mun koma fyrir alla,“ sagði hann.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
banner
banner