Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR var ekki alls kostar sáttur með stigið sem liðið tók með sér úr Kópavogi eftir 1-1 jafntefli gegn HK.
„Við vildum fá þrjú stig og örugglega HK líka, en ég er ekki sáttur. Ég get kannski ekki gert kröfu á mikið meira eftir seinni hálfleikinn þar sem HK voru mun sterkari en við. Mér fannst við reyndar vera töluvert sterkari í fyrri hálfleik og ég var að vonast til þess að við myndum koma í þann seinni af sama krafti,“ sagði Guðlaugur við Fótbolta.net.
„Í seinni hálfleik töpuðum við miðsvæðinu. Við unnum fáa seinni bolta og létum þá stjórna ferðinni. Þeir voru farnir að komast mikið út á kantana þar sem þeir eru sterkir, og það var ekki fyrr en við fáum jöfnunarmarkið á okkur sem það kom kraftur í okkur. En auðvitað fannst okkur við eiga ansi ansi sterkt tilkall til vítaspyrnu á lokamínútunum.“
ÍR er nokkurn vegin fyrir miðja deild eins og er en hins vegar er mjög stutt í toppbaráttuna. Guðlaugur segir sína menn þó ekki huga svo langt.
„Nú fer maður í frasabókina góðu. Við ætlum bara að reyna að hala inn eins mörg stig og mögulegt er, og við reynum að fara í hvern einasta leik til að ná í þessi þrjú sem eru í boði. Það eru einu markmiðin sem við gefum uppi,“ sagði Guðlaugur að lokum við Fótbolta.net.























