,,Mér fannst við sterkari aðilinn í leiknum," sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson leikmaður KR í samtali við Fótbolta.net eftir að liðið varð bikarmeistari í dag.
KR vann Þórsara 2-0 í dag en fyrra markið skoraði Gunnar Már Guðmundsson í eigið net og það síðara skoraði Baldur Sigurðsson.
,,Við gerðum ekki mikið, þetta var ekki okkar besti dagur hingað til. VIð skoruðum tvö mörk þeir skoruðu ekki neitt. Við erum vel að þessu komnir."
KR-ingar virtust fá auka kraft þegar Skúli Jón Friðgeirsson fékk að líta rauða spjaldið.
,,Við vorum alveg betri, Skúli er búinn að vera besti maðurinn okkar í sumar og virkilega vont að missa hann útaf."
Nánar er rætt við Grétar í sjónvarpinu hér að ofan.






















