Fram og Víkingur eru í vondum málum í Pepsi-deildinni en liðin sitja í fallsætum þegar sex umferðir eru eftir. Framarar eru sex stigum frá öruggu sæti en Víkingar átta stigum.
Við skoðuðum botnbaráttuna með þremur álitsgjöfum og skoðuðum hvort þeir teldu að þessi lið gætu bjargað sér frá falli.
Álitsgjafarnir eru og birtast í þessari röð: Eiríkur Stefán Ásgeirsson (blaðamaður á 365), Guðlaugur Baldursson (þjálfari ÍR) og Þórhallur Dan Jóhannsson (þjálfari Álftaness).
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |





















