Arsenal vill unga spænska varnarmenn - Sancho orðaður við aðra endurkomu til Dortmund - Tottenham vill Trafford
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
Arna Eiríks klár í slaginn: Ekki alveg þessi týpísku meiðsli
Gísli Eyjólfs: Hefði verið rómantík að fá að enda ferlana saman
Spáin kom Sigga á óvart: Eina sem þetta gerir er að henda bensíni á klúbbinn
Haraldur Freyr: Ætlum að ná í sigur í Frostaskjóli
Jói Kalli: Spurning hvort það verði Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn
Ísak nýr fyrirliði FH: Var einn af þeim yngri en orðinn einn sá elsti
Kosinn bestur fyrir mót - „Stoltur og pínu kitl að leikmenn kjósi mann"
Hemmi segist elska Brazell - „Alltaf eitthvað blaður og bull“
Álitið - Hver fer í agabann?
Þrjú slit og fimm aðgerðir á milli marka - „Maður er svolítið eins og krakki aftur"
Bestur í Mjólkurbikarnum: Ferðalagið viðbjóður en er enginn sjómaður
Fer yfir leikinn sögulega - „Veit ekki hvað Jói Kalli hefði gert væri hann þarna“
   lau 27. ágúst 2011 20:57
Mist Rúnarsdóttir
Kristrún Rose: Skömmumst okkar ekki neitt
Kvenaboltinn
Kristrún ásamt Smára Stefánssyni dómara leiksins
Kristrún ásamt Smára Stefánssyni dómara leiksins
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Ég veit ekki hvað skal segja. Boltinn vill ekki inn,“ sagði Kristrún Rose Rúnarsdóttir, fyrirliði Þróttar í samtali við Fótbolta.net eftir 2-1 tapið gegn Fylki fyrr í dag. Kristrún var að vonum svekkt með tapið og sagði sitt lið hafa spilað góðan varnarleik.

„Við erum að spila fínan varnarleik og liðin eru ekki að ná að opna okkur, ekkert frekar í þessum leik. Við fáum á okkur mark eftir vítaspyrnu og aukaspyrnu. Þetta var óskiljanlegt víti sem við fáum dæmt á okkur, alveg óskiljanlegt,“ sagði Kristrún Rose og innt eftir útskýringum á því svaraði hún:

„Við erum tvær sem hoppum upp í boltann og ein Fylkisstelpa á milli. Við náum að skalla boltann frá og hann fer allavegana í þá átt, frá markinu og þetta var á línunni og hann dæmir víti!“

Þróttarar fengu einnig vítaspyrnu í leiknum og þeirri vítaspyrnu fylgdi rautt spjald á Kristrúnu Kristinsdóttur, leikmann Fylkis, svo að Þróttarar léku ellefu gegn tíu síðustu tuttugu mínútur leiksins.

„Þetta var eiginlega alveg eins og leikurinn úti. Þá fór einmitt sami leikmaður útaf hjá þeim. Við fengum tuttugu mínútur einum manni fleiri og við nýttum það illa þá. Við nýttum það mun betur í dag og við fengum alveg fullt af færum. Ég skil þetta bara ekki, boltinn vill ekki inn. Þetta var vel varið hjá Björk og hún reddaði Fylki í dag.“

Aðspurð um heildarframmistöðu Þróttarliðsins sagðist Kristrún vera ánægð.

„Ég er mjög ánægð. Við spiluðum flottan bolta. Við erum að spila flottan varnarleik og við erum að skapa færi. Við þurfum bara að klára þau og þá er þetta bara komið.“

„Við eigum alveg skilið að vera í þessari deild og við skömmumst okkar ekki neitt fyrir það sem við erum búnar að vera að gera. Við eigum að vera með miklu fleiri stig. Ég fer ekki af því.“

„Það eru þrír leikir eftir og það eru níu stig. Við förum í þá alla til að vinna og ef við gerum það þá skilar það okkur annað hvort áframhaldandi þátttöku í Pepsi-deildinni eða að það gerir það ekki. Það bara kemur í ljós en við ætlum samt að sækja þessi níu stig engu síður“.


Hægt er að horfa á viðtalið við Kristrúnu í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner