Liverpool hefur áhuga á Gordon - Það gæti bundið enda á vonir Arsenal um að fá Isak
   sun 02. desember 2018 18:38
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Klopp trylltist eftir sigurmarkið
Mynd: Getty Images
Liverpool var rétt í þessu að vinna borgarslaginn gegn Everton þökk sé ótrúlegu marki frá varamanninum Divock Origi.

Staðan var markalaus og allt stefndi í jafntefli þegar Jordan Pickford gerðist sekur um slæm mistök í marki Everton.

Skot Virgil van Dijk, sem hefði líklegast verið síðasta snerting leiksins, var á leið yfir mark Everton. Pickford áttaði sig ekki almennilega á eigin stöðu og blakaði knettinum inná völlinn og beint á kollinn á Origi sem þakkaði kærlega fyrir sig.

Jürgen Klopp gjörsamlega trylltist við markið og óð inn á völlinn til að fagna með Alisson Becker, eins og er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Það er ekki af ástæðulausu sem Klopp er dáður innan knattspyrnuheimsins. Hann gæti þó átt yfir höfði sér bann fyrir að æða inn á völlinn.




Athugasemdir
banner
banner