Barcelona langar í Haaland - Tonali og Fernandes á blaði Man Utd - Klopp gæti tekið við Þýskalandi
   lau 26. október 2019 21:32
Brynjar Ingi Erluson
Dyche um dýfuna hjá Hudson-Odoi: Þetta er fáránlegt
Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, var afar ósáttur með Callum Hudson-Odoi, leikmann Chelsea, í leiknum í dag.

Burnley tapaði leiknum 4-2 en Hudson-Odoi fékk gult spjald fyrir dýfu á 77. mínútu.

Dyche er ekkert sérstaklega hrifinn af leikaraskap og hafði sitt að segja eftir leikinn.

„Ég gersamlega þoli ekki þegar menn dýfa sér. Þetta er svo fáránlegt og það þarfa að henda þessu úr leiknum," sagði Dyche.

„Það eru allir að tala við mig um að virða dómara en leikmenn þurfa þá að virða leikinn," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner