2.deild: Selfoss burstaði Sindra - Magni vann ÍR óvænt (Umfjalla.)
Tíundu umferðinni í annarri deild karla lauk í dag með fjórum leikjum. Selfoss rótburstaði Sindra 9-1 þar sem að Sævar Þór Gíslason gerði fernu og Arilíus Marteinsson þrennu.
Magni vann óvæntan 2-1 útisigur á ÍR, Höttur og KS/Leiftur gerðu jafntefli á Egilsstöðum og Afturelding sigraði Völsung á útivelli. Kíkjum á umfjallanir og myndir úr leikjum dagsins.
Sævar með fjögur og Arilíus þrjú í stórsigri Selfyssinga
Selfoss 9 - 1 Sindri
0-1 Sjálfsmark (8)
1-1 Andri Freyr Björnsson (19)
2-1 Sævar Þór Gíslason (23)
3-1 Sævar Þór Gíslason (32)
4-1 Arilíus Marteinsson (40)
5-1 Arilíus Marteinsson (56)
6-1 Sævar Þór Gíslason (75)
7-1 Arilíus Marteinsson (75)
8-1 Sævar Þór Gíslason (85)
9-1 Ásgeir Börkur Ásgeirsson (90)
Það var sól og blíða á Selfossvelli þegar 436 manns lögðu leið sína á völlinn til að horfa á sína menn spila við Hornfirðinga. Leikurinn fór rólega af stað og komu gestirnir Heimamönnum frá Selfossi á óvart með því að taka forystu í leiknum strax á 8 mínútu.
Markið var frekar slysalegt og fór af varnamanni Selfyssinga og í markið. Heimamenn voru þó fljótir að svara fyrir sig og jafnaði Andri Freyr Björnsson metin tíu mínútum síðar. Sævar Þór Gíslason skoraði svo mörk með 10 mínútna millibili áður en Arilíus Marteinsson breytti stöðunni í 4-1 og Gestirnir frá Hornafirði orðnir frekar ringlaðir.
Seinni hálfleikur byrjaði eins og sá síðari endaði með stór sókn heimamanna og breytti Arilíus stöðunni í 5-1 eftir 10 mínútna leik í seinni hálfleik.
Eftir markið kom smá deyfð yfir leikinn en þegar korter var eftir af leiknum fékk Sævar Þór Gíslason víti eftir að hann var felldur inní teig af Jóhanni markverði Sindra.
Sævar skoraði örugglega úr vítinu og var staðan nú orðin 6-1 og Heimamenn komnir í góð mál. Strax í næstu sókn breytti Arilíus stöðunni í 7-1 eftir góðan samleik við Sævar Þór.
Sævar Þór skoraði svo sitt 4 mark eftir að hafa leikið vörn Sindra grátt. Smiðshöggið á þennan stóra sigur rak svo Ásgeir Börkur Ásgeirsson sem fékk draumasendingu frá Sævari Þór og kláraði færið örugglega og 9-1 sigur staðreynd.
Fótbolti.net, Selfossi - Valur Arnarson.
Mögnuð frammistaða Magna
ÍR 1 - 2 Magni
0-1 Eiður Arnar Pálmason (2)
0-2 Þorsteinn Þorvaldsson (20)
1-2 Erlingur Þór Guðmundsson (89)
Það urðu heldur betur óvænt úrslit í leik ÍR og Magna í Breiðholtinu þar sem Magnamenn tóku öll stigin. Fyrir leikinn sat ÍR í öðru sæti deildarinnar en Magnamenn voru á botninum með aðeins einn sigurleik. Eftir leikinn eru ÍR-ingar hinsvegar dottnir niður í fjórða sætið en Magni sendi ÍH í fallsætið.
Magni fékk sannkallaða óskabyrjun og komst yfir eftir aðeins um tveggja mínútna leik. Eiður Arnar Pálmason slapp í gegn eftir einfalda sókn og náði að skora sitt fjórða mark í deildinni í sumar.
Heimamönnum var greinilega brugðið við þetta. Á tíundu mínútu hefðu þeir átt að jafna en þá fékk Elías Ingi Árnason algjört dauðafæri, átti bara eftir að setja boltann í autt markið en skaut í stöng.
Vörn ÍR var eins og gatasigti og greinilegt að Arnars Hallssonar var sárt saknað. Magnamenn bættu einmitt við marki eftir varnarmistök á tuttugustu mínútu, Þorsteinn Þorvaldsson kláraði færið vel og kom Magna í 2-0. Gestirnir fengu síðan tvö ákjósanleg færi fyrir hlé til að bæta við þriðja markinu sem ekki nýttust.
Leikurinn var mjög hægur og ÍR-ingum gekk brösuglega að skapa sér færi í seinni hálfleiknum þrátt fyrir að hafa verið mun meira með knöttinn. Undir lokin voru gestirnir orðnir ansi þreyttir enda börðust þeir eins og grenjandi ljón allan leikinn. Undir lok venjulegs leiktíma náði Erlingur Þór Guðmundsson að minnka muninn með skalla.
Varamaðurinn Baldvin Jón Hallgrímsson var ekki langt frá því að jafna fyrir ÍR í uppbótartímanum en skalli hans fór naumlega yfir.
Úrslitin 2-1 fyrir Magna en leikmenn liðsins fögnuðu gífurlega í leikslok enda mjög mikilvægur sigur. Leikmenn ÍR virkuðu áhugalausir á meðan Magnamenn gáfu sig alla í verkefnið og uppskáru eftir því. Athyglisvert er að fjögur af sjö stigum Magna í sumar hafa fengist úr leikjum gegn ÍR.
Fótbolti.net, Breiðholti - Elvar Geir Magnússon.
Afturelding lagði Völsung á Húsvík
Völsungur 0 - 2 Afturelding
0-1 Rannver Sigurjónsson
0-2 Arnór Þrastarson
Völsungur og Afturelding öttu kappi í dag á Húsavíkurvelli. Það var fínasta veður til knattspyrnuiðkunar þó að smá vindur hafi verið í lofti. Afturelding byrjuðu betur í leiknum og á 15 mínútu var mark dæmt af þeim vegna rangstöðu.
Þeir héldu áfram að sækja og skoruðu þeir loks á 27. mínútu eftir gott skot inní teig og var þar að verki Randver Sigurjónsson. Í síðari hálfleik var Völsungur sterkari aðilinn í leiknum og hefðu átt að jafna leikinn með skoti í slá eftir góðan einleik Bjarka Baldvinssonar og með góðri aukaspyrnu sem var varin vel.
Þegar dómari leiksins var við það að flauta leikinn af sluppu Afturelding í gegn eftir slæm mistök í vörn Völsungs og komust í 2-0 fftir mark Arnórs Þrastarsonar.
Fleira gerðist ekki í leiknum eftir það og flautaði dómarinn leikinn af.
Þess má til gamans geta að þrír bræður, Guðmundur Óli Steingrímsson (fyrirliði), Sveinbjörn Már Steingrímsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson léku allir með Völsungi í leiknum.
Fótbolti.net, Húsavík - Ásgeir Þór Ásgeirsson.
Tvö stórglæsileg mörk Denis Curic dugðu Hetti ekki til sigurs
Höttur 2 - 2 KS/Leiftur
1-0 Denis Curic (21)
2-0 Denis Curic (48)
2-1 Dusan Ivkovic (68)
2-2 Ragnar Hauksson (77)
Í tíðindalitlum fyrrihálfleik fóru heimamenn til búningsklefa með 1-0 stöðu. Eftir góða sendingu frá Vilmari Frey Sævarssyni frá vinstri kanti á 21 mínútu tók Denis Curic boltann viðstöðulaust í vítateig gestanna og smellti boltanum í stöng og inn, 1-0.
Aðeins mínútu síðar átti Ragnar Hauksson skalla í slá og yfir eftir góða sendingu frá hægri kanti. Staðan í hálfleik 1-0 fyrir heimamenn frá Egilsstöðum.
Strax á 3ju mínútu síðari hálfleiks kom Denis Curic Hetti í 2-0 með frábæru marki úr aukaspyrnu. Spyrnan tekin af 25 metrum, beint í markmannshornið svo að söng í markvinklinum! Stórglæsilegt mark!!
Á 68. mínútu minnkaði Dusan Ivkovic metin með skalla eftir hornspyrnu, 2-1. Aðeins þrem mínútum síðar skorar Denis Curic sitt 3ja mark, sem er svo dæmt af vegna rangstöðu.
Á 77. mínútu jafnar Ragnar Hauksson metin eftir sendingu frá hægri kanti, stakk sér bakvið vörnina og setti hann framhja Oliver markmanni Hattar.
Á 85 mínútu tekur svo Oliver útspark þar sem fyrrnefndur Dusan hleypur fyrir og fær gult spjald. Lætur ekki þar við sitja og rífur kjaft og fær rauðaspjaldið í framhaldi af því og KS/Leiftur því einum færri síðustu mínúturnar.
Úrslit dagsins urðu 2-2, kannski sanngjörn úrslit þar sem KS/Leiftur var jafnvel betri aðili leiksins en að sama skapi slæmt hjá Hetti að halda ekki 2ja marka forystu og taka stigin 3 sem í boði voru.
Fótbolti.net, Egilsstöðum - Guðmundur Bj. Hafþórsson.



