lau 28. júlí 2007 00:34
Magnús Már Einarsson
2.deild: Edilon hetja Hauka - ÍR burstaði Sindra (Umfjallanir)
Haukar fagna sigurmarki Edilons Hreinssonar á 93.mínútu.
Haukar fagna sigurmarki Edilons Hreinssonar á 93.mínútu.
Mynd: Víkurfréttir - Stefán Þór Borgþórsson
Sigurjón Magnús Kevinsson (til hægri) gerði fjögur mörk fyrir ÍR.
Sigurjón Magnús Kevinsson (til hægri) gerði fjögur mörk fyrir ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Guðfinnur Þórir Ómarsson skoraði eitt marka ÍR gegn Sindra í kvöld.
Guðfinnur Þórir Ómarsson skoraði eitt marka ÍR gegn Sindra í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Tveir leikir fóru fram í 2. deild karla í kvöld þar sem að Edilon Hreinsson tryggði Haukum sigur á Völsungi með marki í viðbótartíma og ÍR komst í annað sætið á ný í bili að minnsta kosti eftir stórsigur á Sindra á Hornafirði í leik þar sem Sigurjón Magnús Kevinsson skoraði fjögur mörk.



Haukar 1-0 Völsungur:
1-0 Edilon Hreinsson (´93)

Haukar sóttu meira í fyrri hálfleiknum á heimavelli sínum í kvöld og þeir voru mjög nálægt því að komast yfir undir lok hálfleiksins.

Davíð Ellertsson átti skalla í stöngina, boltinn barst á Ómar Karl Sigurðsson sem skaut í slána og yfir og staðan markalaust þegar að flautað var til leikhlés.

Í síðari hálfleiknum sóttu Haukar áfram meira en vörn Völsungs var þétt fyrir auk þess sem að Kristinn Geir Guðmundsson varði tvívegis stórkostlega.

Allt stefndi í markalaust jafntefli þar til á 93.mínútu að Haukar komust yfir. Kristinn Geir varði skot í teignum en boltinn barst á Edilon Hreinsson sem skoraði og tryggði Haukum 1-0 sigur.

Haukar eru eftir sigurinn sem fyrr á toppnum í annarri deild og hafa fjögurra stiga forskot á ÍR-inga sem eru í öðru sætinu.


Sindri 0-7 ÍR:
0-1 Sigurjón Magnús Kevinsson (´6)
0-2 Elías Ingi Árnason (´23)
0-3 Guðfinnur Þórir Ómarsson (´27)
0-4 Sigurjón Magnús Kevinsson (´35)
0-5 Sigurjón Magnús Kevinsson (´36)
0-6 Elías Ingi Árnason (´50)
0-7 Sigurjón Magnús Kevinsson (´57)

Það var skýjað og þurrt á Mánavelli þegar Sindramenn tóku á móti ÍR-ingum. Leikurinn byrjaði með jafnræði og liðin skiptust á að sækja.

Ekkert færi kom fyrr en ÍR-ingar komust yfir þegar um tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum. Þá var eins og flóðgáttirnar opnuðust því á næstu tuttugu mínútum bættu þeir við fjórum mörkum og voru því í mjög vænlegri 0-5 stöðu þegar gengið var til búningsherbergja.

Seinni hálfleikurinn byrjaði strax á dauðafæri ÍR-inga en Sindramönnum tókst að bjarga í horn. Þegar um tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik fékk Einar Smári Þorsteinsson beint rautt fyrir að tala á óviðeigandi hátt við annan línuvörðinn að mati dómarans en dómurinn verður að teljast mjög strangur.

ÍR-ingar voru því með öll tromp á hendi sér og spiluðu boltanum á milli sín og bættu við tveimur mörkum.

Eftir þau fékk svo Halldór Steinar Kristjánsson að líta beint rautt spjald þegar dómarinn taldi hann vera að stöðva mann sem væri við það að komast í gegn.

Leikmenn Sindra voru því níu á móti ellefu og héldu marki sínu hreinu eftir það. Undir lokin fékk svo Sigurjón Magnús Kevinsson beint rautt spjald þegar dómarinn taldi hann hafa skallað varnarmann Sindra eftir einvígi þeirra en Sigurjón skoraði fjögur mörk í leiknum. Niðurstaðan sanngjarn og mjög svo öruggur sigur ÍR-inga.
Slapp
banner
banner