lau 01. september 2007 21:41
Magnús Már Einarsson
2.deild: Haukar upp í 1.deild - Jafnt hjá KS/Leiftri og ÍR (Umfjal.)
Þorvaldur Þorsteinsson varði nokkrum sinnum vel fyrir KS/Leiftur gegn ÍR.
Þorvaldur Þorsteinsson varði nokkrum sinnum vel fyrir KS/Leiftur gegn ÍR.
Mynd: Guðmundur Karl
Agnar Þór Sveinsson jafnaði fyrir KS/Leiftur gegn ÍR.
Agnar Þór Sveinsson jafnaði fyrir KS/Leiftur gegn ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar höfðu ástðæu til að fagna í dag en þeir burstu Sindra 7-1 og tryggðu sér um leið sæti í fyrstu deild.
Haukar höfðu ástðæu til að fagna í dag en þeir burstu Sindra 7-1 og tryggðu sér um leið sæti í fyrstu deild.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Þór Ingólfsson skoraði þrennu fyrir Hauka í dag.
Ásgeir Þór Ingólfsson skoraði þrennu fyrir Hauka í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Óli Jón Kristinsson skoraði sjötta mark Hauka í dag.
Óli Jón Kristinsson skoraði sjötta mark Hauka í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Stefán Þór Eyjólfsson tryggði Hetti sigur á Magna.
Stefán Þór Eyjólfsson tryggði Hetti sigur á Magna.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Völsungur sigraði ÍH á Húsavík í dag en þessi mynd er úr fyrri leik liðanna í Hafnarfirði.
Völsungur sigraði ÍH á Húsavík í dag en þessi mynd er úr fyrri leik liðanna í Hafnarfirði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
16.umferðinni í annarri deild karla lauk í dag með fjórum leikjum. Haukar hafa tryggt sér sæti í 1.deild en þeir unnu Sindra 7-1 á heimavelli. KS/Leiftur og ÍR gerðu markalaust jafntefli á Siglufirði en þau eru bæði í harðri baráttu um að komast upp. Höttur lagði Magna 1-0 og þá sigraði Völsungur lið ÍH 2-0 á heimavelli. Kíkjum á umfjöllun um leiki dagsins.



KS/Leiftur 1 - 1 ÍR
0-1 Björn Viðar Ásbjörnsson (Víti) (75)
1-1 Agnar Þór Sveinsson (Víti) (87)

Mjög slæmar aðstæður voru til Knattspyrnuiðkunar á Siglufirði í dag en slagveðurs rigning og rok og stórir vatnspollar höfðu samnast fyrir í vellinum. Erfitt var að senda boltann með jörðu því boltinn gjörsamlega stoppaði bara. En leikmenn og dómarar létu þetta ekki hindra það að leikurinn yrði spilaður.

Heimamenn í KS/Leiftri byrjuðu með vindi og voru með yfirhöndina allan fyrri
hálfleik og strax á sjöundu mínútu náðu þeir einni frábærri sókn þegar Heiðar Gunnólfsson byrjaði með boltann á hægri vængnum, sendi boltann á Árna á miðjunni sem framlengdi hann til Ferrys á vinstri kantinn sem átti fasta sendingu fyrir mark ÍRinga beint á Ragnar Hauksson sem skaut boltanum rétt yfir í nánast dauðafæri. KS/Leiftur átti svo nokkrar hornspyrnur í kjölfari þessar sóknar sem ÍRingar björguðu tvisvar á marklínu og þá átti Berenc Feres hörkuskot rétt framhjá marki ÍRinga þegar um 20 mínútur voru búnar.

Næst var röðin kominn af Árna Einari þegar hann átti þrumuskot af löngu færi sem Þorsteinn Einarsson, markmaður ÍR-inga varð glæsilega upp í samskeytin en þetta gerðist eftir rúmlega hálftí maleik. ÍR sem lá aftarlega á vellinum og beitti skyndisóknum en þeir áttu eina slíka þegar um 40 mínútur voru búnar af leiknum en þá komst Elías Ingi Árnason einn í gegn en Þorvaldur Þorsteinsson varði vel í þröngu færi.

Stuttu seinna átti Forisz Sandor stórhættulega aukaspyrnu sem fór í utanverða stöngina en síðasta færi Fyrri hálfleiks átti Ferry þegar hann skaut rétt framhjá við vítateigsbogann. En sem sagt 0-0 í hálfleik.

Seinni hálfleikur var jafnari en sá fyrri og voru pollarnir á vellinum orðnir heldur stórir. KS/Leiftur átti fyrsta færi síðarihálfleiksins þegar boltinn barst út á Orra Rúnarsson sem átti fast skot að marki ÍRinga í þröngu færi sem markmaðurinn varði vel. Leikmaður ÍR átti svo flott skot að marki heimamanna sem Þorvaldur í markinu varði hreint frábærlega.

Elías Ingi komst svo aftur einn í gegn þegar um 70 mínútur voru búnar af leiknum en Þorvaldur sá enn og aftur við honum. En á 75 mínútu gerðist heldur betur umdeilt atvik
þegar dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu á KS/Leiftur. Björn Viðar Ásbjörnsson tók vítaspyrnuna og skoraði af miklu öryggi.

Eftir þetta lögðust gestirnir enn aftar á völlinn og treystu á skyndisóknir lítið markvert gerðist fyrr en á 86 mínútu þegar Agnar Þór Sveinsson átti sendingu fyrir mark gestanna og leikmaður KS/Leifturs Gabríel Reynisson er togaður niður í teignum og dómarinn dæmir sína aðra vítaspyrnu í leiknum. Agnar Þór Sveinsson fer á punktinn og skorar á mitt markið.

Það munaði svo litlu að KS/Leiftur næðu að knýja fram sigur þegar Ferens Berec komst næstum í einn í gegn en var keyrður niður af varnamanni ÍR og lokatölur því 1-1 í spennandi og barráttumiklum leik.

Fótbolti.net, Siglufirði - Ingimar og Kristófer.


Haukar 7 - 1 Sindri
1-0 Goran Lukic (3)
2-0 Ásgeir Ingólfsson (6)
3-0 Ásgeir Ingólfsson (18)
3-1 Björn Pálsson (32)
4-1 Hilmar Geir Eiðsson (53)
5-1 Ásgeir Ingólfsson (49)
6-1 Óli Jón Kristinson (70)
7-1 Edilon Hreinsson (73)

Haukar tryggðu sér í dag sæti í 1.deild að ári með stórsigri á Sindra. Haukar hófu leikinn af krafti og komust yfir á þriðju mínútu.

Eftir langa sókn gaf Kristján Ómar Björnsson inn í, Denis Cardakilja náði ekki að halda knettinum og missti boltann fyrir fætur Goran Lukic, sem lagði hann í netið. Haukar því komnir yfir eftir einungis 3.mínútur. Þremur mínútum síðar áttu Haukar góða skyndisókn þegar Ásgeir Þór Ingólfsson og Þórhallur Dan Jóhannsson voru tveir á móti einum varnamanni Sindra, Ásgeir ætlaði að senda boltann á Þórhall, en varnarmaður Sindra komst inn í sendinguna en Ásgeir fékk boltann aftur og átti skot í nærhornið, framhjá Denis í marki Sindra.

Það var svo á 17.mínútu sem Ómar Karl Sigurðsson átti frábæran einleik og sólaði hvern varnarmann Sindra á fætur öðrum og lagði síðan boltann út í teiginn þar sem Ásgeir lagði hann í netið. Staðan orðin 3-0 eftir einungis 17.mínútna leik. Það var síðan komið af gestunum á 32.mínútu þegar Björn Pálsson skoraði eftir hornspyrnu, en boltann barst út í teiginn þar sem Björn var einn, lagði boltann í fjærhornið. Undir lok fyrri hálfleiks fengu Haukar aukaspyrnu sem Hilmar Geir Eiðsson tók, en Denis Cardaklija varði vel í horn. Staðan í hálfleik 3-1.

Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn eins og þeir byrjuðu þann fyrri, Ómar Karl slapp innfyrir vörn Sindra, renndi boltanum síðan fyrir á Hilmar Geir sem kláraði færið vel og skoraði. Á 53.mínútu skoruðu Haukar síðan sjötta markið í leiknum, eftir mjög langa og stranga sókn, lenti boltinn fyrir fætur Ásgeirs sem hitti boltann vel og skot hans í slánna og inn, en Sindra menn höfðu fyrir markið varið tvö skot frá sóknarmönnum Hauka eftir að boltinn datt fyrir fætur Ásgeirs.

Heimamenn voru ekki hættir og einungis tvem mínútum síðar átti Ómar Karl skot í slá eftir fyrirgjöf frá Ásgeiri Ingólfssyni. Í næstu sókn átti Edilon Hreinsson síðan þrumuskot sem endaði rétt framhjá. Heimamenn voru ekki hættir og átti Goran gott skot utan úr teig sem fór í varnarmann og náði Denis í marki Sindra að verja stórkostlega.

Sjötta mark Hauka kom síðan á 68.mínútu, eftir að Ómar Karl hafði sloppið einn innfyrir og sólað markvörð Sindra náði varnarmaður Sindra að verja á línu og í horn, eftir hornið skoraði síðan Óli Jón Kristinson með skalla. Staðan orðin 6-1. Fimm mínútum síðar, skoraði Edilon Hreinsson síðan lokamarkið í leiknum, en hann slapp einn innfyrir og lagði boltann undir Denis.

Á 78.mínútu átti Úlfar Hrafn Pálsson gott skot en varnarmaður Sindra varði glæsilega með hendinni, en dómarinn leiksins ku ekki hafa séð það nógu vel og hélt leikurinn því áfram. Síðasta færi Hauka átti svo varamaðurinn Garðar Geirsson en hann átti skot í stöng úr þröngu færi.

Ummæli eftir leik:

Ásgeir Þór Ingólfsson:
,,Aðstæðurnar voru ekki góðar í dag en við spiluðum bara ágætlega miðað við aðstæður og kláruðum þennan leik. Ég er mjög ánægður að vera kominn í 1.deild, við kláruðum þetta bara núna, fimm stiga forskot og tveir leikir eftir. Við förum svo á Selfoss og klárum þann leik, við erum ekkert hættir, það kemur ekkert annað til greina nema að vinna deildina."

Fótbolti.net, Hafnarfirði - Arnar Daði Arnarson.


Höttur 1 -0 Magni
1-0 Stefán Þór Eyjólfsson (40)

Leikurinn byrjaði rólega á Vilhjálmsvelli í dag og lítið um færi fyrsta korterið, en smátt og smátt tóku heimamenn völdin í leiknum og fengu nokkur ákjósanleg færi til að komast yfir. Stefán Þór Eysteinsson átti fyrsta hættulega færið þegar fast skot hans hafnaði í hliðarnetinu, hann var svo aftur á ferðinni um miðjan fyrrihálfleik þegar aukaspyrna hans fór rétt yfir.

Denis Curic fékk síðan dauðafæri eftir góða rispu Jóhanns Clausens upp hægri kantinn en hann skaut framhjá af markteig. Á fertugustu mínútu dróg svo til tíðinda þegar Aljosa sendir innfyrir á Stefán Þór sem afgreiðir knöttinn snyrtilega í vinstra hornið og staðan orðin 1-0.

Skömmu síðar fékk Denis algjört dauðafæri þegar hann slapp innfyrir en Atli Már Rúnarsson í markinu sá við honum og síðan skaut Denis framhjá úr frákastinu. Höttur
verðskuldað 1-0 yfir í hálfleik.

Magnamenn komu mun grimmari inní seinnihálfleikinn og fengu strax tvö góð færi eftir klafs í teignum. Um miðjan hálfleikinn fá þeir aukaspyrnu sem Valdimar Pálsson aukaspyrnu sem Óliver Bjarki Ingvarsson blakaði í horn og uppúr hornspyrnunni á Magni skot af stuttu færi sem Hattarar bjarga á línu.

Ekki löngu síðar á Valdimar aðra aukaspyrnu við vítateigshornið hægramegin en skot hans fór rétt yfir. Eftir þetta var lítið um færi Magni reyndi að pressa í lok leiksins án þess að skapa sér teljandi færi og endaði leikurinn því 1-0 fyrir heimamenn í mjög svo kaflaskiptum leik.
Fótbolti.net, Egilsstöðum - Guðmundur Bj. Hafþórsson.


Völsungur 2 - 0 ÍH
1-0 Aron Bjarki Jósepsson (11)
2-0 Jónas Halldór Friðriksson (84)

Fyrsta mark leiksins kom á 11. mínútu eftir hornspyrnu. Guðmundur Óli Steingrímsson tekur spyrnuna og eftir talsvert klafs í teignum skorar Aron Jósepsson og kemur heimamönnum yfir.

Á 25. mínútu kemst Guðmundur Óli síðan einn í gegnum vörn ÍH en nær ekki að nýta sér það. ÍH pressuðu hátt uppi á vellinum í leit að jöfnunarmarki í annars tíðindalitlum fyrri hálfleik.

Seinni hálfleikur byrjaði rólega, en Hallur Kristján Ásgeirsson félagaskiptakóngur Íslands átti skalla framhjá um miðbik hálfleiksins. Þá áttu ÍH snarpa sókn upp kantinn sem endaði með fyrirgjöf, en Hallur náði ekki að nýta sér það.

Hörður Magnússon átti gott skot á mark á 70 mín sem Guðmundur Óli fylgdi eftir og skoraði en dómari leiksins dæmir markið af vegna rangstöðu, réttur dómur að mati heimamanna.

Kristján Gunnar Óskarsson skaut í þverslá fyrir utan vítateig um miðbik seinni hálfleiks en það var ekki fyrr en á 84. mínútu sem Völsungar ná að bæta við marki. Þar var á ferðinni Jónas Halldór Friðriksson. Boltinn barst þá til hans eftir skot Völsunga í varnarmann og Jónas réttur maður á réttum stað og Völsungar komnir í 2-0.

Á 89. fær síðan leikmaður ÍH sitt annað gula spjald eftir að hafa tæklað Björgvin Sigurðsson og er því sendur í sturtu. Völsungur hirti því stigin þrjú í nokkuð jöfnum leik.
Slapp
banner
banner