Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   fim 04. mars 2010 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Páll Magnússon: Ekki reiðubúnir að greiða það sama og í fyrra
Páll Magnússon útvarpsstjóri er í sjónvarpsviðtali við Fótbolta.net í dag þar sem rætt er um niðurskurð stofnunarinnar sem viðkemur fótboltanum..
Páll Magnússon útvarpsstjóri er í sjónvarpsviðtali við Fótbolta.net í dag þar sem rætt er um niðurskurð stofnunarinnar sem viðkemur fótboltanum..
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fréttastofa RÚV greindi frá því á dögunum að hluti af niðurskurði á Ríkissjónvarpinu væri að beinum útsendingum frá leikjum íslenska landsliðsins. Fótbolti.net ræddi við Pál Magnússon útvarpsstjóra í gær þar sem þetta mál bar á góma.

,,Það hefur kannski verið ofsagt að við ætluðum ekki að gera það en við erum alveg reiðubúnir að draga saman í því eins og öllu sem við höfum verið að gera. Þetta er hinsvegar ekki komið á hreint," sagði Páll í sjónvarpsviðtali við Fótbolta.net aðspurður út í þetta.

,,Það er þannig að það er útlenskt fyrirtæki, Sport5, sem á allan rétt á öllum íslenskum fótbolta sem fram fer á vegum KSÍ. Það er að segja öllu sem fram fer á Íslandi. Heimaleikjum landsliðsins, bæði karla og kvenna, og deildarkeppninni og öllu saman," hélt hann áfram en aðstoðarframkvæmdastjóri Sport5 kemur hingað til lands síðar í mánuðinum og þá skýrist hvort samið verði um áframhald.

,,Þá reynir á hvort það nái saman í samningum við þá. Við erum ekki reiðubúnir að greiða það sama og við greiddum í fyrra. Það fer eftir því hversu langt þeir koma til móts við okkur hversu mikið við komum til með að sýna af íslenskum fótbolta."

Áhugasamir geta horft á viðtalið við Pál í sjónvarpsskjánum hér að ofan en hann kemur einnig inn á umfjöllun um Heimsmeistaramótið í knattspyrnu og fleira í viðtalinu.

Slapp
banner