,,Það er alltaf gaman að vinna svo ég var allavega sáttur," sagði Steinþór Freyr Þorsteinsson framherji Íslands í sjónvarpviðtali við Fótbolta.net eftir 2-0 sigur á Færeyjum í dag.
,,Við skoruðum tvö mörk snemma og þeir voru ekkert að skapa sér mikið fyrir utan þetta klúður sem við gáfum þeim í lokin," sagði Steinþór sem sjálfur komst í dauðafæri sem hann misnotaði.
,,Ég hefði viljað sjá hann inni en það kemur vonandi bara í næsta leik. Ég lagði upp mark svo ég er sáttur með það."
Sjónvarpsviðtalið við Steinþór Frey má sjá í heild sinni hér að ofan.























