,,Þetta var arfaslakur leikur og við vorum slakir, þetta var slakasta frammistaða okkar í svolítinn tíma," sagði Mikael Nikulásson þjálfari ÍH eftir 0-3 tap gegn BÍ/Bolungarvík á Ásvöllum í dag.
,,Ég bjóst við Bí sterkari. Þessi leikur var í jafnvægi en dómarinn eyðilagði leikinn."
,,Hann rak mann útaf hjá okkur fyrir tvö mjög rólyndisbrot að mínu mati og þeir eru að gera sömu brot úti á vellinum og sleppa við spjald."
Nánar er rætt við Mikael í sjónvarpinu hér að ofan.





















