,,Það þýðir ekkert annað en að vera á tánum og tilbúin að svara kallinu," sagði Björk Gunnarsdóttir leikmaður Vals eftir 0-9 sigur á FH í kvöld.
Björk hafði verið á bekknum í síðasta leik gegn Haukum en kom sterk inn í kvöld og skoraði þrennu á stundarfjórðungi í fyrri hálfleik.
,,Það var mjög gaman að spila loksins á grasi eftir að hafa byrjað á gervigrasi. Það var blautt, gott veður og frábærar aðstæður."
,,Þetta er svakalega gott lið og vel spilandi. Það er bara mjög gaman, flottur mannskapur, flottar stelpur, þjálfarateymi og allt saman. Þetta er bara alvöru."
























