Auðun Helgason var nokkuð ánægður með spilamennsku Grindvíkinga þrátt fyrir 2-1 liðsins gegn Val í Pepsi-deildinni í kvöld. Eftir tapið eru Grindvíkingar sem fyrr á botninum án stiga.
,,Í dag finnst mér við vera að spila sem eitt lið og þannig séð er ég sáttur við margt. Við þurfum að taka það í næsta leik. Þetta er algjörlega undir okkur komið hvernig hann fer," sagði Auðun við Fótbolta.net eftir leikinn.
Gilles Mbang Ondo jafnaði fyrir Grindavík á 69.mínútu en Valur svaraði strax að bragði þegar Jón Vilhelm Ákason skoraði sigurmarkið.
,,Það er dæmigert þegar að lið hefur átt erfitt hvað varðar sjálfstraust og stemningu. Við verðum að læra af þessu og halda áfram. Það er bara ein leið og hún er upp á við. Fyrr en seinna förum við að spila betur sem lið þannig að ég er bara bjartsýnn."
Hér að ofan má sjá viðtalið við Auðun í heild sinni.






















