Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Þór: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
   fös 20. ágúst 2010 22:03
Magnús Már Einarsson
Guðlaugur Baldursson: Dómgæslan var farsi
Úr leiknum í kvöld.
Úr leiknum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta gekk ágætlega hjá okkur en það voru utanaðkomandi atriði í leiknum sem eyðilögðu hann," sagði Guðlaugur Baldursson þjálfari ÍR ósáttur eftir 2-0 tap liðsins gegn Leikni í fyrstu deildinni í kvöld.

,,Ég er að tala um dómgæsluna. Hún var algjör farsi og gaf okkur ekki tækifæri til þess að vinna leikinn."

Tómas Agnarsson og Árni Freyr Guðnason fengu báðir að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik auk þess sem Leiknir fékk vítaspyrnu.

Þá voru ÍR-ingar æfir yfir öðru marki Leiknis þar sem þeir töldu Kjartan Andra Baldvinsson hafa notað hendina til að leggja boltann fyrir sig áður en hann gaf á Kristján Pál Jónsson sem skoraði.

,,Fyrir það fyrsta er Tómas rekinn út af fyrir að láta sparka í sig. Síðan er annað markið sem drepur okkur endanlega þegar maður tekur boltann inn fyrir með hendinni og skora. Þetta var bara farsi, algjört grín. Það var ekki mikið annað sem skyldi á milli liðanna í dag."

ÍR er eftir þessi úrslit 29 stig í fjórða sætinu og nokkuð ljóst að liðið kemst ekki upp.

,,Við erum úr leik í toppbaráttunni. Við reynum áfram að ná í þrjú stig í hverjum einasta leik sem við förum í, það er ekkert breytt en þetta setur okkur úr toppbaráttunni."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner