Hörð barátta um Rogers - Juventus vill Alisonn - Olise orðaður við Real
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Þór: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
„Svíafíflið þitt“ - Gæðastjórinn heldur rígnum lifandi
Hólmar Örn: Hefði engu máli skipt hvernig við hefðum æft
Guðrún sendir skýr skilaboð fyrir heimaleikina
Katla: Er alltaf að segja henni að koma og spila með íslenska landsliðinu
Sölvi Geir: Skotmarkið á okkur er stærra og við þurfum að gera meira
   mið 01. september 2010 13:32
Leifur Viðarsson
Jón Auðunn: Vissum hvað við höfðum í höndunum
Mynd: Guðmundur Karl
,,Þetta var mjög góður sigur. Liðið spilaði mjög vel, byrjaði þetta af krafti og hélt þetta út," sagði Jón Auðunn Sigurbergsson fyrirliði Árborgar eftir 3-1 sigur liðsins gegn KFS í úrslitakeppni 3.deildarinnar í gær.

,,Það var alltaf stefnan að fara í úrslitakeppnina. Við vissum hvað við höfðum í höndunum."

Árborg sigraði A-riðilinn í þriðju deildinni og kláraði síðan lið KFS sem endaði í öðru sæti í B-riðli.

,,Það eru mörg lið í okkar riðli sem hefðu vel staðið í KFS og náð góðum úrslitum."

Jón Auðunn skoraði í báðum leikjunum gegn KFS og hann stefnir á að halda uppteknum hætti gegn Tindastóli í undanúrslitunum.

,,Eigum við ekki að halda uppteknum hætti og taka þrjú í viðureigninni og taka síðan úrslitaleikinn."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner
banner