,,Ég er svekktur, svekktur með að liðið mitt hafi ekki verið meira tilbúið í dag. Betra liðið vann," sagði Sigursteinn Gíslason þjálfari Leiknis í samtali við Fótbolta.net eftir 1-3 tap fyrir Fjölni í dag.
Þetta tap þýðir að Leiknir komst ekki í úrvalsdeild en Þór vann Fjarðabyggð á sama tíma og fer upp á betri markatölu.
,,Það er klárt að það voru lið sem vildu þetta meira en við, alla vegana sýndum við ekki þann leik í dag eins og við vildum fara upp og þá eigum við það ekkert skilið."
Gunnar Valur Gunnarsson leikmaður Fjölnis var sendur af velli í seinni hálfleik og voru margir á því að brotið hefði verið í teignum en Jóhannes Valgeirsson dæmdi aukaspyrnu.
,,Mér fannst þetta vera víti og það var ljósmyndari frá okkur á hliðarlínunni sem tekur mynd af þessu og sýnir meira að segja aðstoðardómaranum. Hann er klár á að þetta sé fyrir utan en ég ætla ekki að kenna þeim um þetta."
Nánar er rætt við Sigurstein í sjónvarpinu hér að ofan.






















