Hjörtur Logi Valgarðsson leikmaður FH var að vonum svekktur með að 3-0 sigur liðsins gegn Fram hafi ekki náð að tryggja þeim Íslandsmeistaratitilinn. Hann var þó ánægður með frammistöðu liðsins í leiknum.
„Við gerðum það sem við þurftum í dag og fengum ágætan sigur en það er svolítið súrt að þetta skyldi hafa farið svona í hinum leikjunum. En fínn sigur þrátt fyrir það og ég vil bara óska Blikum til hamingju með titilinn,“ sagði Hjörtur Logi við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Þetta dugði Blikunum og við vissum það alveg fyrirfram. En það er svolítið súrt að þetta hafi ráðist á markamun, en þeir áttu þetta skilið.“
Hjörtur Logi viðurkennir að hann hafi verið að pæla í því hvernig úrslitin í hinum leikjunum yrðu, þá sérstaklega eftir að ljóst var að þeir myndu hirða stigin þrjú í Laugardalnum.
„Maður heyrði þetta alltaf í kallkerfinu og hafði þetta svolítið í undirmeðvitundinni. Við vorum náttúrulega búnir að klára þennan leik um miðjan seinni hálfleikinn og þá var maður svolítið að fylgjat með hinum leikjunum. En við gerðum bara það sem við þurftum og ekkert meira en það, held ég. Við vorum ekkert að spila neinn glansfótbolta, þeir fengu ágætis tækifæri til að skora þarna snemma í seinni hálfleik, en það er mjög flott að klára þetta svona,“ sagði Hjörtur Logi.
„Maður getur alltaf horft til baka og séð hvað maður átti að gera betur, en það eru ýmsir leikir á borð við heimaleikina þar sem við vorum að klúðra niður 1-0 stöðum og tapa dýrmætum stigum. En við kláruðum þetta mót mjög vel og við getum verið ánægðir með það.“
„Við vorum mjög gloppóttir þarna í byrjun sumars og vorum ekki að ná neinum góðum „rönnum“ þarna í byrjun. Við vorum eins og ég segi að tapa dýrmætum stigum á heimavelli þar sem við áttum að vinna en við getum alveg sætt okkur við það að hafa klárað þetta mót á fullu.“
Hjörtur Logi mun halda til Noregs eftir helgi þar sem hann mun æfa með Víking frá Stavangri.
„Það eina sem ég get sagt er að ég er að fara út í einhverja viku að æfa í Noregi með Viking Stavanger en ég veit ekki meira en það. Þetta er mjög flottur klúbbur en þetta er bara á byrjunarstigi, það er ekkert í gangi ennþá,“ sagði Hjörtur Logi að lokum.
Stöðutaflan
| L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | |






















