,,Þetta eru bestu 4-0 úrslit sem ég hef séð á ævi minni, ég er hæstánægður," sagði John Andrews þjálfari Aftureldingar eftir 4-0 tap liðsins gegn Þór/KA í Pepsi-deild kvenna í dag.
Þrátt fyrir tapið náði Afturelding að halda sæti sínu í deildinni þar sem Haukar unnu FH.
Þrátt fyrir tapið náði Afturelding að halda sæti sínu í deildinni þar sem Haukar unnu FH.
,,Þetta hefur verið lærdómsrík reynsla fyrir þær og mig í sumar. Núna þegar við erum búin að tryggja sætið í deildinni þá verðum við að passa að þetta gerist aldrei aftur."
John tók við liði Aftureldingar fyrr í sumar en hann verður áfram við stjórnvölinn á næsta tímabili.
,,Það er mikill heiður fyrir mig að vera hluti af meistaraflokki kvenna. Það er mikill heiður fyrir mig að þær héldu sér uppi."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















