Leiknismenn unnu 3-0 útisigur gegn Þrótti í 1. deildinni í kvöld. Breiðhyltingar eru sem stendur á toppi deildarinnar eftir leikinn en öll mörkin komu í fyrri hálfleik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 0 - 3 Leiknir R.
„Við mættum góðu liði Leiknismanna sem refsaði okkur fyrir öll þrjú mistökin í fyrri hálfleik. Þetta var verðskuldaður sigur þeirra," sagði Erlingur Jack Guðmundsson, aðstoðarþjálfari Þróttar, eftir leikinn.
Leiknir fékk fyrstu tvö mörkin á silfurfati frá varnarmönnum Þróttar.
„Það er grátlegt að sjá þetta en í 1. deildinni kemstu stundum upp með svona mistök. Þegar þú ert að keppa á móti góðu liði eins og Leiknir var í dag þá geturðu ekki gert nein mistök. Leikurinn var í raun búinn í fyrri hálfleik en menn gerðu sitt besta í seinni hálfleik."
Erlingur var ekki sáttur við Sigðurð Óla Þórleifsson dómara og segir hann hafa verið með fáránlega línu. Karl Brynjar Björnsson, miðvörður Þróttar, fékk rautt fyrir kjaftbrúk í seinni hálfleik.
„Hann sagði það sem allir á vellinum voru að hugsa: Dæmdu eins og maður. Dómarinn má alveg heyra það. Ef leikmaður spilar ekki vel fær hann að heyra 'Spilaðu eins og maður'. Hann var ekki að dæma eins og maður," sagði Erlingur sem tók það þó fram að dómgæslan hafi ekki hallað á Þrótt þó hún hafi verið slök.
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
























