Martin Lund Pedersen átti mjög góða frumraun fyrir Fjölni er liðið mætti Leikni R. í Lengjubikarnum í kvöld.
Martin gerði fyrsta mark leiksins og var stöðugt hættulegur á boltanum þar sem Leiknismenn þurftu ítrekað að brjóta á honum.
Martin gerði fyrsta mark leiksins og var stöðugt hættulegur á boltanum þar sem Leiknismenn þurftu ítrekað að brjóta á honum.
„Þetta var gaman. Þetta var erfiður leikur gegn góðum andstæðingi og það er mikil harka í þessu," sagði Martin eftir átök kvöldsins.
„Það er frábært að vera búinn að spila minn fyrsta leik á Íslandi, ég hef verið að bíða eftir þessu í tvo mánuði. Mér fannst ég eiga góðan leik eins og restin af liðinu, við fengum góð færi og sigurinn er í höfn sem er fullkomið.
„Ég hef alltaf verið mikill markaskorari og leikur minn snýst mikið um að skora. Ég skoraði líka í vináttuleik í síðustu viku."
Martin var ekki ýkja sáttur þegar hann varð fyrir stöðugum tæklingum í leiknum og það fauk smá í hann.
„Ég sýni mikla ástríðu þegar ég spila og svona er fótboltinn. Við segjum og gerum hluti í hita leiksins en það gleymist allt þegar gengið er af velli, þannig virkar leikurinn."
Athugasemdir






















