,,Mér fannst við einfaldlega ekki nógu góðir í fyrri hálfleik, byrjuðum ágætlega fyrsta korterið, svo riðlaðist leikur okkar," sagði Bjarki Már Árnason þjálfari Tindastóls eftir 2-1 tap gegn HK í Kórnum. Tindastóll situr á botni deildarinnar með 3 stig eftir 9.umferðir og er ljóst að mikil brekka er framundan hjá Sauðkrækingunum.
,,Það var alltaf vitað að þetta væri brekka en það er ekkert eins og við séum búnir að gefast upp, leikur okkar er að verða betri og þetta hlýtur að fara falla með okkur"
Aðspurður um erlenda leikmenn Tindastólsliðsins í sumar hafði Bjarki þetta að segja:
,,Þeir eru bara allir að koma til, þeir styrkja liðið okkar alveg klárlega, þetta á eftir að smella, hef enga trú á öðru"
,,Ég ætla ekkert að skrifa þessi mörk á vörnina, liðið þarf að verjast sem heild. Við höfum fengið á okkur nokkur mörk úr föstum leikatriðum það er erfitt að skrifa það á vörnina"
,,Eins og ég segi, þetta þarf svolítið að fara falla með okkur, við vorum mjög óheppnir í síðasta leik og eins og núna, við hefðum átt að jafna leikinn en þeir bjarga á línu á síðustu mínútu."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir






















