
„Þetta er leikur sem verður að vinnast ef við ætlum að eiga möguleika á efsta sætinu," sagði Hannes Þór Halldórsson, markvörður íslenska landsliðsins, í viðtali við Fótbolta.net í hádeginu.
Framundan hjá íslenska liðinu er leikur gegn Króatíu á Laugardalsvelli á sunnudaginn.
Framundan hjá íslenska liðinu er leikur gegn Króatíu á Laugardalsvelli á sunnudaginn.
Ísland er fyrir leikinn í öðru sæti í Riðli I undankeppni HM. Króatía er í efsta sæti riðilsins með þremur stigum meira en Ísland.
„Þetta er "must-win" leikur fyrir okkur ef við ætlum að halda áfram að stefna á fyrsta sætið sem hefur alltaf verið markmiðið okkar," sagði hann enn fremur um leikinn.
Gengi Íslands gegn Króatíu hefur ekki verið gott að undanförnu. Íslandi hefur tekist að vinna þá króatísku, breytist það á sunnudag?
„Við erum ekki búnir að ríða feitum hesti frá okkar viðureignum við þá upp á síðkastið. Ég er ekki viss um að það sé grýla, það hefur nú meira með það að gera að þeir eru með frábært lið, þeir eru fáránlega góðir og ótrúlega vel mannaðir."
„Við erum samt á þeim stað núna að við eigum séns á að taka þá, við erum á heimavelli, komnir með mikla reynslu og höfum spilað við þá þrisvar, þannig að það er möguleiki á að taka þá."
„Það þarf allt að ganga upp hjá okkur til þess að vinna þá, en við höfum áður lagt lið af velli sem eru sterkari á pappírnum."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir