Á morgun, klukkan 13:00, verður kynntur hópur kvennalandsliðsins fyrir EM í Sviss. Ein af þeim sem kemur sterklega til greina í hópinn er Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH.
Miðvörðurinn átti mjög góðan leik í Boganum í dag og fór fyrir sínu liði í sigrinum á Þór/KA í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Arna var kölluð inn í landsliðshópinn fyrir síðustu tvo leikina í Þjóðadeildinni. Hún er 23 ára og er einn allra besti leikmaður Bestu deildarinnar. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, var spurður út í Örnu eftir leikinn í kvöld.

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 3 FH
Ertu að búast við því að hún verði í landsliðshópnum á morgun?
„Já, ég trúi bara ekki öðru. Hún er búin að sýna á þessu tímabili hvers megnug hún er. Hún er í svo góðu standi, andlega flott líka. Ég held að hún sé að spila sitt langbesta tímabil á sínum ferli. Það er ekkert nema upp á við hjá henni," sagði Guðni.
„Ég yrði mjög vonsvikinn út í frænda minn ef hann myndi ekki velja hana á morgun," sagði Guðni og brosti.
Athugasemdir