
Sædís Rún Heiðarsdóttir og stöllur hennar í Vålerenga unnu tíunda leik sinn í röð í öllum keppnum er liðið vann öruggan 3-0 sigur á Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Íslenska landsliðskonan var eins og venjulega í byrjunarliði Vålerenga.
Karina Sævik var allt í öllu í sigrinum með eitt mark og tvær stoðsendingar, en Vålerenga er komið á toppinn með 33 stig, stigi meira en Brann sem er í öðru sætinu.
Vålerenga hefur unnið síðustu sjö deildarleiki og þá unnið alla þrjá bikarleiki sína á árinu.
Íslendingalið Rosengård er komið aftur á sigurbraut eftir að hafa tapað þremur deildarleikjum í röð.
Rosengård, sem slátraði sænsku deildinni á síðasta tímabili, hefur verið í miklu basli á þessu tímabili, en leikmenn vonast til þess að 3-0 sigur þess á Linköping í dag komi liðinu aftur á skrið.
Guðrún Arnardóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir voru báðar í byrjunarliðinu. Rosengård er í 6. sæti með 16 stig, átta stigum frá toppnum.
María Catharina Ólafsdóttir Gros spilaði allan leikinn með Linköping sem er í næst neðsta sæti með 5 stig.
Alexandra Jóhannsdóttir, Guðný Árnadóttir og Katla Tryggvadóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad sem gerði 2-2 jafntefli við Brommapojkarna og þá kom Sigdís Eva Bárðardóttir inn af bekknum er Norrköping gerði 1-1 jafntefli við Växjö.
Fanney Inga Birkisdóttir sat allan tímann á varamannabekknum hjá Häcken sem kjöldró AIK, 6-0, á heimavelli. Häcken er á toppnum með 24 stig, Kristianstad í 4. sæti með 20 stig og Norrköping í 12. sæti með 11 stig.
Athugasemdir