Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 22:27
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeild kvenna: Grindavík/Njarðvík á toppinn - Hulda Ösp fór hamförum í grannaslag
Kvenaboltinn
Grótta vann grannaslaginn gegn KR
Grótta vann grannaslaginn gegn KR
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hulda Ösp Ágústsdóttir (t.h) skoraði fjögur fyrir Gróttu!
Hulda Ösp Ágústsdóttir (t.h) skoraði fjögur fyrir Gróttu!
Mynd: Grótta
Grindavík/Njarðvík er á toppnum
Grindavík/Njarðvík er á toppnum
Mynd: Grindavík
Grindavík/Njarðvík tyllti sér á toppinn í Lengjudeild kvenna í kvöld með 3-0 sigri liðsins á Aftureldingu. Hulda Ösp Ágústsdóttir skoraði þá fernu í 4-2 sigri Gróttu á KR í nágrannaslag.

Við byrjum í Keflavík en þar unnu heimakonur 4-1 sigur á Fylki.

Keflavík fór með þriggja marka forystu inn í hálfleikinn. Olivia Madeline Simmons skoraði á 2. mínútu og bætti Ariela Lewis við tveimur mörkum fyrir hálfleik.

Anita Bergrán Eyjólfsdóttir bætti fjórða markinu við um það bil tuttugu mínútum fyrir leikslok áður en Emma Björt Arnarsdóttir klóraði í bakkann fyrir Fylki á lokamínútunum.

Keflavík er í 6. sæti með 9 stig en Fylkir í 9. sæti með 6 stig.

Keflavík 4 - 1 Fylkir
1-0 Olivia Madeline Simmons ('2 )
2-0 Ariela Lewis ('11 )
3-0 Ariela Lewis ('38 )
4-0 Anita Bergrán Eyjólfsdóttir ('72 )
4-1 Emma Björt Arnarsdóttir ('83 )

Keflavík Anna Arnarsdóttir (m), Kristrún Ýr Holm (86'), Emma Kelsey Starr, Anita Bergrán Eyjólfsdóttir (77'), Marín Rún Guðmundsdóttir (86'), Olivia Madeline Simmons, Hilda Rún Hafsteinsdóttir, Brynja Arnarsdóttir, Salóme Kristín Róbertsdóttir, Anita Lind Daníelsdóttir, Ariela Lewis (65')
Varamenn Thelma Sif Róbertsdóttir, Kamilla Huld Jónsdóttir (77'), Kara Petra Aradóttir (86'), María Rán Ágústsdóttir (86'), Ragnheiður Júlía Rafnsdóttir, Elfa Karen Magnúsdóttir (65'), Vala Björk Jónsdóttir (m)

Fylkir Rebekka Rut Harðardóttir (m), Signý Lára Bjarnadóttir, Marija Radojicic (77'), Emma Björt Arnarsdóttir, Eva Stefánsdóttir, Ásdís Þóra Böðvarsdóttir, Harpa Karen Antonsdóttir (77'), Embla Katrín Oddsteinsdóttir, Erna Þurý Fjölvarsdóttir (40'), Guðrún Þóra Geirsdóttir (67'), Bergdís Fanney Einarsdóttir (77')
Varamenn Laufey Björnsdóttir (77), Tinna Harðardóttir (77), Kolfinna Baldursdóttir (67), Birna Kristín Eiríksdóttir (77), Hildur Anna Brynjarsdóttir, Katrín Ásta Eyþórsdóttir (40), Sara Rún Antonsdóttir

Grindavík/NJarðvík kom sér á toppinn með 3-0 sigri á Aftureldingu á Malbikstöðinni að Varmá.

Eydís María Waagfjörð skoraði eftir hálftímaleik og bættu þær Dröfn og Tinna Hrönn Einarsdætur við tveimur mörkum á sex mínútum í þeim síðari.

Grindavík/Njarðvík er með 16 stig á toppnum en Afturelding á botninum með 3 stig.

Afturelding 0 - 3 Grindavík/Njarðvík
0-1 Eydís María Waagfjörð ('32 )
0-2 Dröfn Einarsdóttir ('66 )
0-3 Tinna Hrönn Einarsdóttir ('69 )

Afturelding Esther Júlía Gustavsdóttir (m), Saga Líf Sigurðardóttir (62'), Elíza Gígja Ómarsdóttir, Ólöf Hildur Tómasdóttir (79'), Andrea Katrín Ólafsdóttir, Anna Pálína Sigurðardóttir, Elfa Sif Hlynsdóttir (79'), Katrín S. Vilhjálmsdóttir, Hanna Faith Victoriudóttir (62'), Karólína Dröfn Jónsdóttir (62'), Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir
Varamenn Hlín Heiðarsdóttir (62'), Marem Ndiongue (62'), Thelma Sól Óðinsdóttir (79'), Sigrún Guðmundsdóttir (62'), Alexandra Austmann Emilsdóttir (79'), Snædís Logadóttir

Grindavík/Njarðvík María Martínez López (m), Viktoría Sól Sævarsdóttir (81'), Brookelynn Paige Entz, Dröfn Einarsdóttir, Katrín Lilja Ármannsdóttir (90'), Anna Rakel Snorradóttir, Eydís María Waagfjörð (90'), Ása Björg Einarsdóttir, Sigríður Emma F. Jónsdóttir (58'), Júlía Rán Bjarnadóttir (81'), Krista Sól Nielsen
Varamenn Kamilla Ósk Jensdóttir, Rakel Rós Unnarsdóttir (81), Þórunn Elfa Helgadóttir, Tinna Hrönn Einarsdóttir (58), Svanhildur Röfn Róbertsdóttir (90), Birta Eiríksdóttir (81), Ástrós Anna Ólafsdóttir

Hulda Ösp Ágústsdóttir fór mikinn í 4-2 sigri Gróttu á KR á KR-vellinum.

Hún kom Gróttu í 2-0 með tveimur mörkum á fjórum mínútum og stóðu leikar þannig í hálfleik. Rakel Grétarsdóttir minnkaði muninn fyrir KR á 57. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar fullkomnaði Hulda Ösp þrennu sína.

Makayla Soll minnkaði aftur muninn fyrir KR á 74. mínútu áður en Hulda Ösp skoraði fjórða mark sitt aðeins mínútu síðar. Ótrúleg frammistaða hjá Huldu sem er komin með 8 mörk og nú markahæst í deildinni.

Sigurinn kom Gróttu í 12 stig og í 4. sætið, upp fyrir KR, sem er með 10 stig í 5. sæti.

KR 2 - 4 Grótta
0-1 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('27 )
0-2 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('31 )
1-2 Rakel Grétarsdóttir ('57 )
1-3 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('59 )
2-3 Makayla Soll ('74 )
2-4 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('75 )
Lestu um leikinn

KR Helena Sörensdóttir (m), Anna Björk Kristjánsdóttir, Rakel Grétarsdóttir, Kara Guðmundsdóttir, Anna María Bergþórsdóttir, Katla Guðmundsdóttir, Maya Camille Neal, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Lina Berrah, Makayla Soll, Þórey Björk Eyþórsdóttir
Varamenn Karen Guðmundsdóttir, Aníta Björg Sölvadóttir, Íris Grétarsdóttir, Koldís María Eymundsdóttir, Ólöf Freyja Þorvaldsdóttir, Eva María Smáradóttir, Matthildur Eygló Þórarinsdóttir (m)

Grótta Margrét Rún Stefánsdóttir (m), Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir, Telma Sif Búadóttir, Tara Jónsdóttir, Rebekka Sif Brynjarsdóttir, Haylee Rae Spray, Ryanne Molenaar, Hulda Ösp Ágústsdóttir, Katrín Rut Kvaran, Hildur Björk Búadóttir, Lovísa Davíðsdóttir Scheving
Varamenn Rakel Lóa Brynjarsdóttir, Margrét Edda Lian Bjarnadóttir, María Björk Ómarsdóttir, Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir, María Lovísa Jónasdóttir, Lilja Davíðsdóttir Scheving, Þórdís Ösp Melsted (m)

Haukar og ÍA skildu jöfn, 1-1, á BIRTU-vellinum í Hafnarfirði.

Halla Þórdís Svansdóttir kom Haukum í forystu á 58. mínútu, en Madison Mbrooke Schawrtzenberger jafnaði þegar aðeins sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Haukar eru í 7. sæti með 7 stig en ÍA í sætinu fyrir neðan með 6 stig.

Haukar 1 - 1 ÍA
1-0 Halla Þórdís Svansdóttir ('58 )
1-1 Madison Brooke Schwartzenberger ('83 )


Haukar Viktoría Sólveig K. Óðinsdóttir (m), Anna Rut Ingadóttir, Kristín Magdalena Barboza (84'), Rakel Lilja Hjaltadóttir (66'), Rut Sigurðardóttir, Berglind Þrastardóttir, Halla Þórdís Svansdóttir, Selma Sól Sigurjónsdóttir, Hekla Björk Sigþórsdóttir, Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir, Ásdís Halla Jakobsdóttir
Varamenn Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir (84'), Kristín Björk Hjaltadóttir, Kristín Erla Halldórsdóttir, Ragnheiður Tinna Hjaltalín (66'), Elma Dís Ólafsdóttir, Emilíana Guðrún Antonsdóttir, Aníta Ösp Björnsdóttir (m)

ÍA Klil Keshwar (m), Anna Þóra Hannesdóttir, Madison Brooke Schwartzenberger, Elizabeth Bueckers (92'), Erla Karitas Jóhannesdóttir, Erna Björt Elíasdóttir, Ísabel Jasmín Almarsdóttir, Sigrún Eva Sigurðardóttir (81'), Selma Dögg Þorsteinsdóttir, Róberta Lilja Ísólfsdóttir (81'), Lára Ósk Albertsdóttir (68')
Varamenn Arndís Lilja Eggertsdóttir (81), Nadía Steinunn Elíasdóttir (81), Bríet Sunna Gunnarsdóttir, Tera Viktorsdóttir, Hugrún Stefnisdóttir (92), Vala María Sturludóttir (68), Salka Hrafns Elvarsdóttir (m)
Lengjudeild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Grindavík/Njarðvík 7 5 1 1 16 - 9 +7 16
2.    HK 6 5 0 1 16 - 7 +9 15
3.    ÍBV 6 4 1 1 25 - 4 +21 13
4.    Grótta 7 4 0 3 18 - 14 +4 12
5.    KR 7 3 1 3 16 - 19 -3 10
6.    Keflavík 7 2 3 2 11 - 9 +2 9
7.    Haukar 7 2 1 4 7 - 17 -10 7
8.    ÍA 7 1 3 3 8 - 13 -5 6
9.    Fylkir 7 2 0 5 9 - 16 -7 6
10.    Afturelding 7 1 0 6 3 - 21 -18 3
Athugasemdir