Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
banner
   fös 13. júní 2025 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Theo fer ekki aftur til Atletico
Mynd: EPA
Franski bakvörðurinn Theo Hernandez er í mestu vandræðum með að finna sér nýtt félag í sumar, en nú hefur Atlético Madríd dregið sig úr viðræðum við AC MIlan um kaup á leikmanninum.

Sádi-arabíska félagið Al Hilal náði samkomulagi við Milan um Theo á dögunum en Frakkinn hafnaði gríðarlega háum launum til að halda áfram að lifa evrópska drauminn.

Hernandez er 27 ára gamall og var fjögur ár í röð í liði ársins í Seríu A.

Hann lýsti yfir því að hann vildi fara frá Milan og eftir að hann hafnaði Al Hilal kom aðeins uppeldisfélag hans, Atlético Madríd, til greina.

Atlético hefur átt í viðræðum við Milan síðustu daga og lagði fram annað tilboð sitt upp á 20 milljónir evra, en Milan hafnaði því og ákvað Atlético því að draga sig úr viðræðunum.

MIlan vill að minnsta kosti 25 milljónir evra sem er talið gjöf en ekki gjald fyrir leikmann af þessu kaliberi.
Athugasemdir